Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Reykhólahreppur
Málaflokkur
Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur
Undirritunardagur
28. apríl 2025
Útgáfudagur
20. júní 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 663/2025
28. apríl 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Reykhólahreppi.
Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Kletts í Kollafirði.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti 12. mars 2025 nýtt deiliskipulag í landi Kletts við Kollafjörð. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir 15 lóðum fyrir frístundahús innan frístundabyggðar F14 og þremur athafnalóðum á landbúnaðarsvæði jarðarinnar Kletts.
Deiliskipulagið hefur hlotið málsmeðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Reykhólahreppi, 28. apríl 2025.
F.h. sveitarstjórnar,
Hlynur Torfi Torfason skipulagsfulltrúi.
B deild - Útgáfud.: 20. júní 2025