Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Matvælaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður

Undirritunardagur

15. febrúar 2023

Útgáfudagur

15. febrúar 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 146/2023

15. febrúar 2023

REGLUGERÐ

um (7.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 7. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/174 sem breytir framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið, um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/174 er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 1/2023.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Matvælaráðuneytinu, 15. febrúar 2023.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Margrét Björk Sigurðardóttir.

B deild - Útgáfud.: 15. febrúar 2023

Tengd mál