Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Umhverfismál, Timbur og timburvara
Undirritunardagur
13. september 2016
Útgáfudagur
20. september 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 95/2016
13. september 2016
LÖG
um timbur og timburvöru.
HANDHAFAR
VALDS
FORSETA
ÍSLANDS
samkvæmt
8.
gr.
stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra,
forseti
Alþingis
og
forseti
Hæstaréttar,
gjöra
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
vér
staðfest
þau
með
samþykki
voru:
I. KAFLI Markmið, gildissvið og skilgreiningar.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að koma í veg fyrir viðskipti með við úr ólöglegu skógarhöggi og markaðssetningu timburs og timburvöru úr slíkum viði hér á landi.
2. gr. Gildissvið.
Lög þessi gilda um markaðssetningu timburs og timburvöru, sbr. skilgreiningu í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað. Lög þessi gilda einnig um sölu timburs og timburvöru um fjarsamskiptamiðla, sbr. skilgreiningu í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 97/7/EB frá 20. maí 1997 um neytendavernd að því er varðar fjarsölusamninga. Endurunnið timbur og endurunnar timburvörur falla utan gildissviðs laga þessara.
3. gr. Skilgreiningar.
Í lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim er merking eftirtalinna hugtaka sem hér segir:
-
Gildandi löggjöf: Gildandi lagaákvæði í skógarhöggslandinu um eftirfarandi atriði:
- rétt til skógarhöggs innan skjalfestra svæðismarka,
- greiðslu fyrir rétt til skógarhöggs og fyrir timbur, þ.m.t. opinber gjöld í tengslum við skógarhögg,
- framkvæmd skógarhöggs, þ.m.t. lagaákvæði um umhverfismál og skógrækt, þar á meðal skógarstjórnun og vernd líffræðilegrar fjölbreytni, að því leyti sem slíkt tengist skógarhöggi beinlínis,
- lagalegan afnota- og eignarrétt þriðja aðila sem skógarhögg hefur áhrif á,
- viðskipti og tolla að því leyti sem slíkt varðar hagnýtingu skóga.
- Kaupmaður: Einstaklingur eða lögaðili sem, innan ramma verslunarstarfsemi, selur eða kaupir á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins timbur eða timburvöru sem þegar hefur verið sett á innri markaðinn.
- Kerfi áreiðanleikakannana: Kerfi sem felur í sér ráðstafanir og verklagsreglur til að lágmarka áhættuna á að timbur úr ólöglegu skógarhöggi og vara úr slíku timbri sé sett á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins.
- Lögbært stjórnvald: Stjórnvald sem ber ábyrgð á framkvæmd laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra.
- Löglegt skógarhögg: Skógarhögg sem er í samræmi við gildandi löggjöf í skógarhöggslandinu.
- Markaðssetning: Að setja, innan ramma verslunarstarfsemi, timbur eða timburvöru í fyrsta skipti á innri markað Evrópska efnahagssvæðisins til dreifingar eða notkunar, gegn gjaldi eða endurgjaldslaust. Sala á innri markaði á timbri eða timburvöru sem þegar hefur verið sett á innri markað telst ekki til markaðssetningar.
- Ólöglegt skógarhögg: Skógarhögg sem er í bága við gildandi löggjöf í skógarhöggslandinu.
- Rekstraraðili: Hver sá einstaklingur eða lögaðili sem setur timbur eða timburvöru á markað, sbr. 6. tölul.
- Skógarhöggsland: Landið eða yfirráðasvæðið þar sem viðurinn var höggvinn.
- Vöktunarstofnun: Lögaðili sem býður upp á kerfi áreiðanleikakannana.
II. KAFLI Verkaskipting stjórnvalda.
4. gr. Yfirstjórn og ábyrgð.
Ráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum.
5. gr. Hlutverk Mannvirkjastofnunar.
Mannvirkjastofnun
hefur
umsjón
með
framkvæmd
laga
þessara,
er
ráðherra
til
ráðgjafar
og
fer
með
eftirlit
eftir
því
sem
kveðið
er
á
um
í
lögum
þessum.
Í
þessu
skyni
skal
Mannvirkjastofnun
m.a.:
- annast eftirlit til að sannprófa að rekstraraðilar uppfylli kröfur samkvæmt lögum þessum,
- annast eftirlit með kerfi áreiðanleikakannana, þ.m.t. að framkvæma áhættumat og athugun á ráðstöfunum rekstraraðila sem gerðar eru til þess að draga úr hættu á að timbur úr ólöglegu skógarhöggi eða vara úr slíku timbri sé sett á markað hér á landi,
- fara í eftirlitsferðir og skoða gögn og skrár þar sem sýnt er fram á að kerfi áreiðanleikakannana og verklagsreglur virki á réttan hátt,
- hafa eftirlit með því að timburvara á markaði uppfylli ákvæði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim, en stofnunin fylgist með timbri og timburvöru á markaði, aflar upplýsinga um slíkar vörur og tekur við ábendingum þess efnis frá tollstjóra, Skógræktinni, neytendum og öðrum aðilum,
- halda skrár yfir það eftirlit sem er framkvæmt og varðveita þær í a.m.k. fimm ár,
- annast eftirlit með vöktunarstofnunum,
- hafa samstarf við tollyfirvöld um framkvæmd eftirlits með innflutningi og markaðssetningu samkvæmt lögum þessum,
- veita almennar leiðbeiningar og fræðslu um framkvæmd laga þessara.
Mannvirkjastofnun getur falið löggiltri skoðunarstofu að annast markaðseftirlit og faggiltri prófunarstofu að prófa og meta hvort timburvara uppfylli ákvæði laga þessara. Um faggildingu gilda ákvæði laga um faggildingu o.fl. Beiting úrræða skv. 16. gr. skal vera í höndum Mannvirkjastofnunar.
6. gr. Hlutverk Skógræktarinnar.
Hlutverk Skógræktarinnar er:
- að veita Mannvirkjastofnun ráðgjöf á grundvelli þeirrar sérþekkingar sem stofnunin hefur yfir að ráða á sviði skógræktar,
- að rannsaka og framkvæma prófanir á timbri og timburvöru sem Mannvirkjastofnun hefur tekið sýnishorn af, óski Mannvirkjastofnun eftir því.
7. gr. Hlutverk tollstjóra.
Hlutverk tollstjóra er að veita Mannvirkjastofnun upplýsingar um innflutning á timbri og timburvöru sem fellur undir lög þessi, sé þess óskað.
III. KAFLI Kerfi áreiðanleikakannana og vöktunarstofnanir.
8. gr. Kerfi áreiðanleikakannana.
Rekstraraðilar
sem
setja
timbur
og
timburvöru
í
fyrsta
skipti
á
innri
markað
Evrópska
efnahagssvæðisins
skulu,
á
grundvelli
kerfisbundinnar
nálgunar,
gera
viðeigandi
ráðstafanir
til
að
ganga
úr
skugga
um
að
timbur
úr
ólöglegu
skógarhöggi
og
vara
úr
slíku
timbri
sé
ekki
sett
á
markað.
Skal
rekstraraðili
nota
kerfi
áreiðanleikakannana
sem
vöktunarstofnanir
bjóða
upp
á
skv.
9.
gr.
Þrátt
fyrir
ákvæði
1.
mgr.
er
rekstraraðila
heimilt
að
nota
eftirlitskerfi
eða
verklagsreglur
sem
hann
notar
nú
þegar
við
gildistöku
laga
þessara
og
samræmist
kröfum
um
kerfi
áreiðanleikakannana.
Rekstraraðili
skal
óska
eftir
því
við
vöktunarstofnun
að
hún
taki
til
skoðunar
og
ákveði
hvort
viðkomandi
eftirlitskerfi
eða
verklagsreglur
uppfylli
kröfur
sem
gerðar
eru
til
kerfis
áreiðanleikakannana.
Ráðherra
mælir
í
reglugerð
fyrir
um
þá
þætti
sem
kerfi
áreiðanleikakannana
skal
fela
í
sér.
9. gr. Vöktunarstofnun.
Lögaðili
með
staðfestu
innan
Evrópska
efnahagssvæðisins
getur
fengið
viðurkenningu
sem
vöktunarstofnun,
að
uppfylltum
skilyrðum
um
sérþekkingu
og
hæfni
sem
ráðherra
kveður
á
um
í
reglugerð.
Aðili
sem
óskar
eftir
því
að
fá
viðurkenningu
sem
vöktunarstofnun
skal
sækja
um
það
til
Eftirlitsstofnunar
EFTA
sem
að
höfðu
samráði
við
stjórnvöld
viðurkennir
umsækjanda
sem
uppfyllir
skilyrði
1.
mgr.
Aðili
sem
hefur
fengið
viðurkenningu
sem
vöktunarstofnun
skal
sinna
þeim
skyldum
sem
kveðið
er
á
um
í
10.
gr.,
að
öðrum
kosti
getur
Eftirlitsstofnun
EFTA
afturkallað
viðurkenningu
aðila
sem
vöktunarstofnunar.
Ráðherra
mælir
í
reglugerð
nánar
fyrir
um
viðurkenningu
og
afturköllun
viðurkenningar
aðila
samkvæmt
ákvæði
þessu.
10. gr. Hlutverk vöktunarstofnana.
Hlutverk vöktunarstofnana er:
- að viðhalda og meta reglulega kerfi áreiðanleikakannana, sbr. 8. gr., og veita rekstraraðilum rétt til að nota þau,
- að sannprófa rétta notkun rekstraraðila á kerfi áreiðanleikakannana,
- að gera viðeigandi ráðstafanir ef rekstraraðili notar kerfi áreiðanleikakannana á rangan hátt og sú ranga notkun er stórvægileg eða endurtekin.
IV. KAFLI Almennar skyldur.
11. gr. Skyldur rekstraraðila.
Óheimilt er að setja á markað timbur og timburvöru úr ólöglegu skógarhöggi. Við innflutning og markaðssetningu timburs og timburvöru skulu rekstraraðilar nota kerfi áreiðanleikakannana, sbr. 8. gr., til að tryggja að timbur úr ólöglegu skógarhöggi og vara úr slíku timbri verði ekki sett á markað.
12. gr. Skyldur kaupmanna.
Kaupmenn
skulu,
í
allri
aðfangakeðjunni,
geta
staðfest
deili
á
rekstraraðilum
eða
kaupmönnum
sem
afhentu
þeim
timbur
og
timburvöru
sem
og
kaupmönnum
sem
þeir
sjálfir
afhentu
timbur
og
timburvöru.
Kaupmenn
skulu
ávallt
geyma
upplýsingar
skv.
1.
mgr.
í
a.m.k.
fimm
ár
og
afhenda
þær
Mannvirkjastofnun
óski
stofnunin
þess.
V. KAFLI Þvingunarúrræði o.fl.
13. gr. Heimild til skoðunar og upplýsingaskylda.
Mannvirkjastofnun,
eða
eftir
atvikum
þeim
sem
hefur
verið
falið
markaðseftirlit
með
timbri
og
timburvöru,
sbr.
3.
mgr.
5.
gr.,
er
heimilt
að
skoða
timburvöru
hjá
kaupmönnum
og
rekstraraðilum,
taka
sýnishorn
af
timbri
eða
timburvöru
til
rannsókna
og
krefja
þá
um
allar
nauðsynlegar
upplýsingar
og
gögn,
svo
sem
skrá
yfir
þá
sem
hafa
vöruna
á
boðstólum.
Kaupmaður
eða
rekstraraðili
ber
kostnað
vegna
þeirra
sýnishorna
sem
tekin
eru
til
rannsóknar
skv.
1.
mgr.
Að
lokinni
rannsókn
skal
sýnishornum
skilað
eða
þeim
eytt
með
öruggum
hætti
eftir
atvikum.
Kaupmaður
eða
rekstraraðili
ber
allan
kostnað
af
innköllun
timburs
eða
timburvöru.
Sé
vara
ekki
í
samræmi
við
settar
reglur
skal
hann
bera
þann
kostnað
sem
hlýst
af
skoðun,
rannsókn
og
prófun,
svo
og
annan
kostnað.
14. gr. Áminning, úrbætur og dagsektir.
Til
að
knýja
á
um
framkvæmd
ráðstöfunar
samkvæmt
lögum
þessum
er
Mannvirkjastofnun
heimilt
að
veita
viðkomandi
aðila
áminningu.
Jafnframt
skal
veita
hæfilegan
frest
til
úrbóta
ef
þeirra
er
þörf.
Ef
aðili
sinnir
ekki
fyrirmælum
skv.
1.
mgr.
um
úrbætur
innan
tiltekins
frests
getur
Mannvirkjastofnun
ákveðið
honum
dagsektir
þar
til
úr
er
bætt.
Dagsektir
renna
til
ríkissjóðs
og
er
hámark
þeirra
500.000
kr.
á
dag.
15. gr. Innköllun o.fl.
Mannvirkjastofnun getur bannað sölu eða afhendingu timburs og timburvöru ef varan uppfyllir ekki skilyrði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim. Jafnframt getur stofnunin fyrirskipað innköllun eða að timbur og timburvara sé tekin af markaði ef varan uppfyllir ekki skilyrði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim. Enn fremur getur Mannvirkjastofnun krafist þess að rekstraraðili eða kaupmaður fargi viðkomandi timbri eða timburvöru með öruggum hætti, ráðstafi vörunni með öðrum hætti eða afturkalli hana og geymi þar til bætt hefur verið úr ágöllum.
16. gr. Aðstoð lögreglu.
Mannvirkjastofnun getur leitað aðstoðar lögreglu ef með þarf við framkvæmd þvingunarúrræða.
VI. KAFLI Viðurlög.
17. gr. Haldlagning.
Mannvirkjastofnun getur lagt hald á timbur eða timburvöru sem uppfyllir ekki skilyrði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim og fargað vörunni á kostnað handhafa hennar eða ráðstafað með öðrum hætti.
18. gr. Stjórnvaldssektir.
Mannvirkjastofnun
getur
lagt
stjórnvaldssektir
á
einstakling
eða
lögaðila
sem
brýtur
gegn
ákvæðum
laga
þessara
og
reglna
settra
samkvæmt
þeim
og
ákvörðunum
eftirlitsaðila.
Slíkar
sektir
geta
numið
allt
að
1.000.000
kr.
Við
ákvörðun
sekta
skal
m.a.
taka
tillit
til
alvarleika
brots,
hvað
það
hefur
staðið
lengi,
samstarfsvilja
hins
brotlega
aðila
og
hvort
um
ítrekað
brot
er
að
ræða.
Jafnframt
skal
líta
til
þess
hvort
ætla
megi
að
brotið
hafi
verið
framið
í
þágu
hagsmuna
rekstraraðila
eða
kaupmanns.
Mannvirkjastofnun
er
heimilt
að
ákveða
hærri
sektir
hafi
aðili
hagnast
á
broti.
Gjalddagi
stjórnvaldssektar
er
30
dögum
eftir
að
ákvörðun
um
sektina
er
tekin.
Hafi
stjórnvaldssekt
ekki
verið
greidd
innan
15
daga
frá
gjalddaga
skal
greiða
dráttarvexti
af
fjárhæð
sektarinnar
frá
gjalddaga.
Ákvörðun
Mannvirkjastofnunar
um
stjórnvaldssekt
er
aðfararhæf
og
renna
sektir
í
ríkissjóð
að
frádregnum
kostnaði
við
álagningu
og
innheimtu.
Um
ákvörðun
og
útreikning
dráttarvaxta
fer
eftir
lögum
um
vexti
og
verðtryggingu.
Stjórnvaldssektum
skal
beitt
óháð
því
hvort
lögbrot
eru
framin
af
ásetningi
eða
gáleysi.
19. gr. Kærur.
Heimilt er að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laga þessara til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Um aðild, kærufrest, málsmeðferð og annað er varðar kæruna fer samkvæmt lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.
VII. KAFLI Reglugerð. Innleiðing og gildistaka.
20. gr. Reglugerð.
Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um framkvæmd laga þessara.
21. gr. Innleiðing.
Lög þessi eru sett til innleiðingar á eftirfarandi gerðum:
- Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október 2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað sem vísað er til í lið 9c í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2013.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 607/2012 frá 6. júlí 2012 um ítarlegar reglur varðandi kerfi áreiðanleikakannana og varðandi tíðni og eðli eftirlits með vöktunarstofnunum sem kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 frá 20. október 2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað sem vísað er til í lið 9cb í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar nr. 75/2013.
- Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 363/2012 frá 23. febrúar 2012 um reglur um málsmeðferð við viðurkenningu og afturköllun á viðurkenningu fyrir vöktunarstofnanir eins og kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 995/2010 um skyldur rekstraraðila sem setja timbur og timburvörur á markað sem vísað er til í lið 9ca í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 75/2013.
22. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 13. september 2016.
| Bjarni Benediktsson. | Einar K. Guðfinnsson. | Markús Sigurbjörnsson. |
| (L. S.) |
Sigrún Magnúsdóttir.
A deild - Útgáfud.: 20. september 2016