Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hvalfjarðarsveit

Málaflokkur

Skipulagsmál, Mýra- og Borgarfjarðarsýsla

Undirritunardagur

6. maí 2025

Útgáfudagur

20. maí 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 519/2025

6. maí 2025

GJALDSKRÁ

vegna skipulagsmála, lóðamála, framkvæmdaleyfa og þjónustu skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar.

1. gr. Gildissvið.

Gjaldskrá þessi gildir um meðferð og útgáfu leyfa sem skipulagsfulltrúi Hvalfjarðarsveitar veitir ásamt þjónustu og eftirliti sem hann sinnir í Hvalfjarðarsveit.

2. gr. Meginreglur.

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.

Skipulagsnefnd og/eða sveitarstjórn getur þó ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulagsáætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið.

Gjaldskráin sýnir viðmiðunargjald miðað við hefðbundinn tíma og kostnað einstakra mála. Ef kostnaður vegna vinnu skipulagsfulltrúa eða aðkeyptrar vinnu er verulega umfram viðmiðunargjald, vegna umfangs verksins, áskilur sveitarfélagið sér rétt til að leggja á viðbótar tímagjald skipulagsfulltrúa og/eða, eftir atvikum, starfsmanns umhverfis- og skipulagsdeildar eða gjald samkvæmt reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.

Ef nýtt deiliskipulag eða verulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi kalla á breytingar á gildandi aðalskipulagi og/eða öðrum deiliskipulagsuppdráttum áskilur sveitarfélagið sér jafnframt rétt til að innheimta tímagjald skipulagsfulltrúa og/eða, eftir atvikum, starfsmanns umhverfis- og skipulagsdeildar eða gjald skv. reikningi vegna aðkeyptrar vinnu embættisins.

3. gr. Skilgreiningar.

Afgreiðslugjald: Gjald sem greitt er við móttöku umsóknar um skipulagsbreytingu, lóðamál eða framkvæmdaleyfi. Afgreiðslugjaldi er ætlað að standa straum af kostnaði sveitarfélagsins við móttöku og yfirferð erindis, sem lagt er fram til afgreiðslu á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa eða fundi skipulagsnefndar. Greiðsla afgreiðslugjalds er óafturkræf þótt erindi sé synjað eða það dregið til baka ef vinna skipulagsfulltrúa/skipulagsnefndar hefur átt sér stað og málið verið tekið fyrir á fundi.

Umsýslu- og auglýsingakostnaður: Kostnaður sveitarfélagsins við undirbúning og umsýslu erindis til kynningar og/eða auglýsingar.

4. gr. Innheimta gjalda.

Sveitarfélagið innheimtir gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá.

Innheimta skal afgreiðslugjald þegar umsókn er lögð fram vegna erindis um breytingu á aðalskipulagi, erindis um nýtt deiliskipulag, verulegar eða óverulegar breytingar á fyrirliggjandi deiliskipulagi, erindis um lóðamál og erindis um framkvæmdaleyfi. Gjaldskráin tekur mið af því að afgreiðslugjald sé hluti af heildarkostnaði málsmeðferðar. Sé þörf á að vinna nýja skipulagsáætlun eða breytingu á fyrirliggjandi skipulagsáætlun vegna leyfisskyldra framkvæmda innheimtir skipulagsfulltrúi tímagjald skv. 2. gr. þessarar gjaldskrár fyrir þá skipulagsvinnu sem nauðsynleg er vegna þeirrar framkvæmdar.

5. gr. Gjalddagi.

Afgreiðslugjald samkvæmt þessari gjaldskrá skal innheimta við móttöku erindis og skal vera greitt áður en fjallað er um erindið. Umsýslu- og auglýsingagjald vegna breytingar á aðal- eða deiliskipulagi skal greiða áður en tillaga er auglýst í kjölfar samþykktar þess efnis. Gjald vegna lóðamála, umfram afgreiðslugjald, skal greiða samhliða skráningu til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Gjald vegna framkvæmdaleyfis skal greiða samhliða útgáfu leyfisins. Gjald vegna grenndarkynningar skv. 8. gr. þessarar gjaldskrár skal innheimt, eftir atvikum, samhliða byggingarleyfisgjöldum byggingarfulltrúa.

6. gr. Grunneiningar.

Afgreiðslugjald 28.600 kr.
Tímagjald umhverfis- og skipulagsdeildar 18.400 kr.

7. gr. Kostnaður vegna aðalskipulagsbreytinga.

Vinna við breytingu á aðalskipulagsuppdrætti, sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, veruleg breyting 290.100 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, óveruleg breyting 85.300 kr.

8. gr. Kostnaður vegna deiliskipulags.

Nýtt deiliskipulag:
Vinna við gerð nýs deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 38. gr. og 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með lýsingu 290.100 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, án lýsingar 162.700 kr.
Verulegar breytingar á deiliskipulagi:
Vinna við breytingu á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 162.700 kr.
Óverulegar breytingar á deiliskipulagi:
Vinna við breytingu á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 Skv. reikningi
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með grenndarkynningu 76.700 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, án grenndarkynningar 19.400 kr.

9. gr. Kostnaður vegna grenndarkynningar.

Grenndarkynning, sbr. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, deiliskipulag ekki fyrir hendi 56.600 kr.

10. gr. Kostnaður vegna lóðamála.

Umsýsla og staðfesting merkjalýsingar skv. lögum um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001 og reglugerð um merki fasteigna nr. 160/2024 36.800 kr.
Breyting á skráningu í landskrá fasteigna Afgreiðslugjald

11. gr. Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis.

Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, viðmiðunargjald 119.400 kr.
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir, viðmiðunargjald 52.900 kr.
Eftirlit umfram eina ferð sem innifalin er í framkvæmdaleyfisgjaldi Skv. tímagjaldi

12. gr. Gjaldtökuheimild og breytingar á fjárhæð gjalda.

Leyfisgjöldum fylgja lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð þar sem við á og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi án undangengins dóms eða réttarsáttar skv. 53. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010. Leyfisgjöld eru óafturkræf þótt leyfi falli úr gildi.

Gjöld samkvæmt þessari gjaldskrá miðast við launavísitölu í mars 2025 sem er 1.063,9 stig og breytast þau 1. janúar ár hvert til samræmis við breytingar á vísitölunni, námundaðar í næsta heila hundrað, og gilda þannig til loka viðkomandi almanaksárs. Fyrsta hækkun reiknast í janúar 2026.

13. gr. Gildistaka o.fl.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Með samþykki gjaldskrár þessarar fellur úr gildi gjaldskrá vegna skipulagsmála, lóðamála, framkvæmdaleyfa og þjónustu skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar nr. 1354/2022.

Gjaldskrá þessi var samþykkt af umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd Hvalfjarðarsveitar 16. apríl 2025 og staðfest af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar 23. apríl 2025.

Hvalfjarðarsveit, 6. maí 2025.

Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 20. maí 2025

Tengd mál