Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

10. desember 2021

Útgáfudagur

10. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1424/2021

10. desember 2021

REGLUR

um umgjörð viðskipta með fjármálagerninga.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um nánari framkvæmd laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga hvað varðar:

  1. Hlutfall óframkvæmdra tilboða miðað við viðskipti í því skyni að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar viðskiptaaðstæður, skv. 85. gr. laganna.
  2. Tímabundna stöðvun viðskipta með fjármálagerninga og töku þeirra úr viðskiptum skv. 57., 83. og 93. gr. laganna.
  3. Ákvörðun um mikilvægi markaðar með tilliti til seljanleika í tengslum við tilkynningar um tímabundna stöðvun viðskipta skv. 83. og 93. gr. laganna.
  4. Kröfur um viðskiptavaktarsamninga og viðskiptavaktarkerfi, skv. 26. og 84. gr. laganna.

2. gr. Tilvísanir.

Bindandi skriflegur samningur: Tilvísanir í reglum þessum til bindandi skriflegs samnings eins og um getur í b-lið 3. mgr. 17. gr. og 2. mgr. 48. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til skriflegs samnings skv. 2. tölulið 1. mgr. 26. gr. og 84. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

Skylda til að mynda seljanleika: Tilvísanir í 3. gr. reglugerðar (ESB) 2017/578 til skyldu verðbréfafyrirtækja að mynda seljanleika með reglubundnum og fyrirsjáanlegum hætti eins og mælt er fyrir um í a-lið 3. mgr. 17. gr. tilskipunar 2014/65/ESB skal skilja sem tilvísanir til 1. töluliðar 1. mgr. 26. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga.

3. gr. Innleiðing reglugerða.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirfarandi reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) sem birtar eru í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72 frá 11. nóvember 2021, bls. 1-6, 12-15 og 41-46, með þeim aðlögunum sem leiða af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 88 frá 31. október 2019, bls. 7-19, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/566 frá 18. maí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir hlutfall óframkvæmdra tilboða miðað við viðskipti í því skyni að koma í veg fyrir ótilhlýðilegar viðskiptaaðstæður.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/569 frá 24. maí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla fyrir tímabundna stöðvun viðskipta með fjármálagerninga og töku þeirra úr viðskiptum.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/570 frá 26. maí 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla til að ákvarða um mikilvægi markaðar með tilliti til seljanleika í tengslum við tilkynningar um tímabundna stöðvun viðskipta.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/578 frá 13. júní 2016 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla sem tilgreina kröfurnar um viðskiptavaktarsamninga og viðskiptavaktarkerfi.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 26. gr., 6. mgr. 57. gr., 5. mgr. 83. gr., 4. mgr. 84. gr., 3. mgr. 85. gr. og 9. mgr. 93. gr. laga nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga, taka gildi þegar í stað.

Seðlabanka Íslands, 10. desember 2021.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 10. desember 2021

Tengd mál