Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstofnanir, Varnarmál
Undirritunardagur
19. júní 2008
Útgáfudagur
26. júní 2008
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 610/2008
19. júní 2008
AUGLÝSING
um mannvirki og fjarskiptakerfi Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem Varnarmálastofnun ber ábyrgð á.
1. gr.
Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 ber utanríkisráðherra að birta lista yfir þau mannvirki og þær eignir Atlantshafsbandalagsins (NATO) og íslenska ríkisins sem Varnarmálastofnun ber ábyrgð á.
2. gr.
Í fylgiskjölum með auglýsingu þessari er að finna lista yfir þau mannvirki og fjarskiptakerfi Atlantshafsbandalagsins, innan og utan öryggissvæða, sem Varnarmálastofnun ber ábyrgð á skv. 1. mgr. 15. gr. varnarmálalaga.
Þau mannvirki sem eru stjörnumerkt á einstökum listum eru í ráðstöfunar- og uppgjörsferli, á vegum utanríkisráðuneytisins, í samræmi við ákvarðanir Atlantshafsbandalagsins.
3. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er á grundvelli 2. mgr. 15. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 1. og 2. gr. laga um friðhelgi og forréttindi alþjóðastofnana nr. 98/1992, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Utanríkisráðuneytinu, 19. júní 2008.
F. h. r.
Grétar Már Sigurðsson.
Þórir Ibsen.
Fylgiskjöl.
(sjá
PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 26. júní 2008