Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Landbúnaður, Matvæli, Fóður

Undirritunardagur

26. mars 2025

Útgáfudagur

14. apríl 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 408/2025

26. mars 2025

REGLUGERÐ

um (51.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 126. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/499 frá 11. mars 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerðin sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 13/2025.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. mars 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfud.: 14. apríl 2025

Tengd mál