Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál

Undirritunardagur

30. júní 2017

Útgáfudagur

17. júlí 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 652/2017

30. júní 2017

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við 3. tl. 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, z, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/963 frá 16. júní 2016, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2016.

2. gr.

Viðaukar A og B við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2322 frá 10. desember 2015, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 474/2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur innan Bandalagsins sem um getur í II. kafla reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 2111/2005 í fylgiskjali IV við reglugerðina, falla niður.

3. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/963 frá 16. júní 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um að stofna skrá Bandalagsins yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur innan Bandalagsins, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1, um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 214/2016 frá 28. október 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 17. nóvember 2016, bls. 276-304.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. júní 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

B deild - Útgáfud.: 17. júlí 2017

Tengd mál