Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
14. apríl 2023
Útgáfudagur
28. apríl 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 415/2023
14. apríl 2023
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „diplómanám í félagsráðgjöf“ í 1. málslið 12. mgr. 86. gr. reglnanna koma orðin: diplómanám í áfengis- og vímuefnamálum.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 94. gr. reglnanna:
- Við upptalningu kennslugreina í 1. mgr. bætast orðin: Til M.Acc.-prófs í reikningsskilum og endurskoðun.
-
Á
eftir
10.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Skipan M.Acc.-náms í reikningskilum og endurskoðun miðast við þrjú misseri. Námið er 90 einingar. Deildin setur nánari reglur um inntökuskilyrði og námskröfur sem birtar eru í kennsluskrá.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 14. apríl 2023.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 28. apríl 2023