Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
17. mars 2020
Útgáfudagur
18. mars 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 227/2020
17. mars 2020
REGLUR
um sveiflujöfnunarauka á fjármálafyrirtæki.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki, sem skylt er að viðhalda sveiflujöfnunarauka samkvæmt 86. gr. d. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
2. gr. Gildi sveiflujöfnunarauka.
Fjármálafyrirtæki skulu viðhalda sveiflujöfnunarauka sem nemur 0% af áhættugrunni, vegna innlendra áhættuskuldbindinga. Sveiflujöfnunaraukanum skal einnig viðhaldið á samstæðugrunni.
Við útreikning eigin fjár sem viðhalda skal samkvæmt 86. gr. d. laga um fjármálafyrirtæki ber að líta til vegins meðaltals sveiflujöfnunarauka hér á landi og í öðrum ríkjum á Evrópska efnahagssvæðinu.
3. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. d. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd og öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 17. mars 2020.
| Ásgeir Jónsson | Rannveig Júníusdóttir | |
| seðlabankastjóri. | framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 18. mars 2020