Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

15. desember 2022

Útgáfudagur

30. desember 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1609/2022

15. desember 2022

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um hvaða félagi beri að tilkynna um skilaskyldan aðila á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Félag, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal tilkynna ríkisskattstjóra innan mánaðar frá því að reikningsári lýkur á árinu 2023 hvaða félag í samstæðunni muni skila ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða staðgöngufélag móðurfélags.

Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað á eyðublaðinu RSK 4.31 á netfangið milliverdlagning@skatturinn.is.

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið milliverdlagning@ skatturinn.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og reglugerð nr. 766/2019, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 15. desember 2022.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 30. desember 2022

Tengd mál

Stjórnartíðindi