Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
8. apríl 2021
Útgáfudagur
26. apríl 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 441/2021
8. apríl 2021
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 35, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/736 frá 2. júní 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/736 frá 2. júní 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 225/2020 frá 11. desember 2020. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 7, frá 28. janúar 2021, bls. 698-713.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. apríl 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 26. apríl 2021