Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármálaráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Lífeyrissjóðir

Undirritunardagur

13. desember 2011

Útgáfudagur

28. desember 2011

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1220/2011

13. desember 2011

REGLUGERÐ

um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2011 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr.

Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2011 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármálaráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr.

Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorkulífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr.

Úthlutun fjárframlags árið 2011.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2011 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármálaráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2010 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2010 samtals kr. 777.682.817.044 og er áætlað fjárframlag ársins 2010 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 2.527.469.155 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 32.806.550 1,298%
Eftirlaunasjóður FÍA 7.759.330 0,307%
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar 808.790 0,032%
Eftirlaunasj. starfsm. Hafnarfjarðarkaupstaðar 1.491.207 0,059%
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands 530.769 0,021%
Festa lífeyrissjóður 243.799.675 9,646%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 72.563.639 2,871%
Gildi lífeyrissjóður 908.675.711 35,952%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 19.613.161 0,776%
Kjölur lífeyrissjóður 3.614.281 0,143%
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar 2.047.250 0,081%
Lífeyrissjóður bankamanna - aldurs 19.082.392 0,755%
Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfalls 14.558.222 0,576%
Lífeyrissjóður bænda 13.471.411 0,533%
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga 20.876.895 0,826%
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar 429.670 0,017%
Lífeyrissjóður Rangæinga 15.493.386 0,613%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 2.502.194 0,099%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 1.516.481 0,060%
Lífeyrissjóður starfsm. Húsavíkurkaupstaðar 960.438 0,038%
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 2.552.744 0,101%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 23.379.090 0,925%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 92.758.118 3,670%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 95.058.115 3,761%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 28.358.204 1,122%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 13.092.290 0,518%
Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar 1.263.735 0,050%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 1.086.812 0,043%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 3.639.556 0,144%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 255.501.857 10,109%
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 57.575.747 2,278%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 69.480.127 2,749%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 90.483.396 3,580%
Stafir lífeyrissjóður 70.263.643 2,780%
Stapi lífeyrissjóður 288.358.956 11,409%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 52.015.315 2,058%
Samtals 2.527.469.155 100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2012, í október 2012, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2011 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2010.

4. gr.

Leiðrétting fjárframlags ársins 2010.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2009 er 764.931.410.433. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2009 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 968/2010, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2010 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2009 er kr. 24.616.762.919 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2010 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2010, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 968/2010, nemur því samtals kr. 80.004.479, til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2011 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar um þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 1.132.863 1,416%
Eftirlaunasjóður FÍA 202.411 0,253%
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar 33.601 0,042%
Eftirlaunasjóður Sláturfélags Suðurlands, nú Söfnunarsjóður lífeyrisréttindi 27.201 0,034%
Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka, nú Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 800 0,001%
Eftirlaunasj. starfsmanna Hafnarfjarðarkaupstaðar 49.602 0,062%
Eftirlaunasj. starfsm. Útvegsbanka Íslands 14.400 0,018%
Festa lífeyrissjóður 7.799.636 9,749%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 2.332.930 2,916%
Gildi lífeyrissjóður 29.134.431 36,416%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 590.433 0,738%
Kjölur lífeyrissjóður 150.408 0,188%
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar 69.603 0,087%
Lífeyrissjóður bankamanna - aldurs 510.428 0,638%
Lífeyrissjóður bankamanna - hlutfalls 379.221 0,474%
Lífeyrissjóður bænda 476.826 0,596%
Lífeyrissjóður Eimskipafélags Íslands 0 0,000%
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga 559.231 0,699%
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar 12.800 0,016%
Lífeyrissjóður Rangæinga 495.227 0,619%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 65.603 0,082%
Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. 59.203 0,074%
Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar 24.801 0,031%
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar 68.803 0,086%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 656.036 0,820%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 2.476.938 3,096%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 3.061.771 3,827%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 777.643 0,972%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 390.421 0,488%
Lífeyrissjóður starfsmanna Vestmannaeyjabæjar 36.802 0,046%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 33.601 0,042%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 156.808 0,196%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 7.893.241 9,866%
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 1.868.904 2,336%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 2.293.728 2,867%
Lífeyrissjóðurinn Skjöldur,
nú Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
3.200 0,004%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 3.041.770 3,802%
Stafir lífeyrissjóður 2.297.728 2,872%
Stapi lífeyrissjóður 9.135.711 11,419%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 1.689.694 2,112%
Samtals 80.004.479 100,000%

5. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Fjármálaráðuneytinu, 13. desember 2011.

F. h. r.

Hafdís Ólafsdóttir.

Lilja Sturludóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. desember 2011

Tengd mál