Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
12. desember 2013
Útgáfudagur
3. janúar 2014
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1234/2013
12. desember 2013
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.
1. gr.
III. liður 1. gr. fellur niður.
2. gr.
Í stað orðanna „I. og III. lið" í 1. málsl. síðustu málsgreinar 1. gr., um inntökunefnd, kemur: I. – II. lið.
3. gr.
Í stað tölunnar „40" í lok 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. kemur: 30.
4. gr.
II. kafli reglnanna ásamt fyrirsögn fellur niður. Jafnframt breytist tölusetning þeirra kafla sem á eftir koma, þ.e. III. kafli verður II. kafli og IV. kafli verður III. kafli.
5. gr.
3. gr. reglnanna verður hluti I. kafla og orðast svo ásamt fyrirsögn:
Takmörkun á inntöku nemenda í lagadeild.
Fjöldi nemenda á 1. námsári við lagadeild takmarkast við töluna 150. Um framkvæmd fjöldatakmörkunar í lagadeild gilda reglur nr. 928/2013 um inntöku nýnema og inntökupróf í lagadeild Háskóla Íslands.
6. gr.
Í stað tölunnar „25" í 2. mgr. 4. gr. kemur: 35.
7. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræðasviða og deilda háskólans, gilda frá og með háskólaárinu 2014-2015 og eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.
Háskóla Íslands, 12. desember 2013.
Kristín Ingólfsdóttir.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2014