Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Sveitarstjórnarmál, Húnavatnssýslur
Undirritunardagur
23. janúar 2023
Útgáfudagur
24. janúar 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 30/2023
23. janúar 2023
SAMÞYKKT
um breytingu á samþykkt um stjórn Húnaþings vestra, nr. 588/2019, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 45. gr. samþykktarinnar:
-
8.
töluliður
C-liðar
orðast
svo:
Umdæmisráð barnaverndar. Samkvæmt samningi um rekstur umdæmisráðs landsbyggða skipa aðildarsveitarfélögin fimm manna valnefnd sem fer með umboð sveitarfélaganna til skipunar í umdæmisráð barnaverndar. Skipunartími umdæmisráðs er fimm ár. -
Við C-lið bætast við tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Barnaverndarþjónusta á Mið–Norðurlandi. Samkvæmt samningi um rekstur barnaverndarþjónustu á Mið–Norðurlandi, sbr. auglýsingu nr. 1627/2022 fer sveitarfélagið Skagafjörður með verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sem ekki eru falin öðrum.
- Samráðshópur í málefnum fatlaðs fólks. Einn fulltrúi í samræmi við samning um leiðandi sveitarfélag í málefnum fatlaðs fólks.
2. gr.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur sett samkvæmt ákvæðum 9. og 18. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 23. janúar 2023.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Hafdís Gísladóttir.
B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2023