Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Opinber innkaup - framkvæmdir
Undirritunardagur
29. febrúar 2016
Útgáfudagur
14. mars 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 223/2016
29. febrúar 2016
REGLUGERÐ
um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.
1. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna skyldu til útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar
20.811.600
kr.
Þjónustusamningar
20.811.600
kr.
Verksamningar
805.486.000
kr.
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér:
Vörusamningar
32.219.440
kr.
Þjónustusamningar
32.219.440
kr.
Verksamningar
805.486.000
kr.
2. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna þjónustusamninga sem gerðir eru af opinberum aðilum, að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér og varðar þjónustu sem tilgreind er í 8. flokki í II. viðauka A, fjarskiptaþjónustu í 5. flokki, sem hefur samsvarandi stöðu í CPV-flokkuninni og CPC-tilvísunarnúmerin 7524, 7525 og 7526, og/eða þjónusta sem er tilgreind í II. viðauka B, er 20.811.600 kr.
3. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir vegna kostnaðarþátttöku opinberra aðila sbr. 13. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup skulu vera 805.486.000 kr. vegna verksamninga og 33.322.856 kr. vegna þjónustusamninga.
4. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna forauglýsingar á Evrópska efnahagssvæðinu vegna áætlaðra kaupa á einu ári er 64.438.880 kr. fyrir vöru- og þjónustusamninga og 805.486.000 kr. fyrir verksamninga, sbr. 35. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB er birt sem fylgiskjal við lög nr. 84/2007 um opinber innkaup.
5. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna gerðar sérleyfissamninga um verk er 805.486.000 kr., sbr. 56. og 63. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB.
6. gr.
Viðmiðunarfjárhæð vegna hönnunarsamkeppni, sbr. 67. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB, skulu vera sem hér segir:
Opinberir aðilar að frátöldum sveitarfélögum, stofnunum þeirra, öðrum opinberum aðilum á þeirra vegum eða samtökum sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 20.811.600 kr.
Sveitarfélög, stofnanir þeirra, aðrir opinberir aðilar á þeirra vegum og samtök sem þessir aðilar kunna að hafa með sér: 32.219.440 kr.
7. gr.
Viðmiðunarfjárhæðir skv. 1.-6. gr. reglugerðar þessarar gilda einnig um útboðsskyldu vegna innkaupa samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup sem Ísland er aðili að.
8. gr.
Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2342 frá 15. desember 2015 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2004/18/EB að því er varðar beitingu viðmiðunarfjárhæða við útboð og gerð samninga, sem vísað er til í XVI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 29/2016, þann 5. febrúar 2016.
Reglugerðin er sett með heimild í 78. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup og tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 583/2014 um viðmiðunarfjárhæðir vegna opinberra innkaupa á Evrópska efnahagssvæðinu og samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) um opinber innkaup.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 29. febrúar 2016.
F. h. r.
Sigurður H. Helgason.
Hrafn Hlynsson.
B deild - Útgáfud.: 14. mars 2016