Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Reykjavík
Undirritunardagur
6. febrúar 2025
Útgáfudagur
21. febrúar 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 184/2025
6. febrúar 2025
GJALDSKRÁ
fyrir meindýravarnir Reykjavíkurborgar.
1. gr.
Fyrir þjónustu, búnað og efni til meindýravarna á vegum Dýraþjónustu Reykjavíkur skal Dýraþjónusta Reykjavíkur innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Tímagjald skal innheimt fyrir eyðingu meindýra en þó skal ekkert gjald tekið fyrir eyðingu á rottum og minkum. Tímagjald vegna þjónustuverkefna, úttekta og gjald fyrir akstur skal vera sem hér segir:
| Tímagjald | 6.490 kr./klst. |
| Akstur | 2.070 kr./ferð. |
3. gr.
Fyrir efni og annan búnað tengdum meindýraeyðingunni skal greiða gjald miðað við innkaupaverð og notað magn efnis ásamt 50% umsýsluþóknun.
4. gr.
Gjaldskrá þessi sem samin er og samþykkt af borgarráði Reykjavíkur, með heimild í 5. mgr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá Meindýravarna Reykjavíkurborgar, nr. 1279/2023.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 6. febrúar 2025.
Einar Þorsteinsson.
B deild - Útgáfud.: 21. febrúar 2025