Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

4. febrúar 2020

Útgáfudagur

18. febrúar 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 120/2020

4. febrúar 2020

REGLUGERÐ

um sniðmát og birtingu Fjármálaeftirlitsins á sértækum upplýsingum samkvæmt lögum um vátryggingastarfsemi.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um Fjármálaeftirlitið þegar það birtir sértækar upplýsingar skv. 30. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

2. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2451 frá 2. desember 2015 um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar sniðmát og fyrirkomulag við birtingu eftirlitsyfirvalda á sértækum upplýsingum í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76 frá 26. september 2019, bls. 30-90, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 62/2018, frá 23. mars 2018, sem er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6 frá 30. janúar 2020, bls. 41-48.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 30. gr. laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 4. febrúar 2020.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Hjörleifur Gíslason.

B deild - Útgáfud.: 18. febrúar 2020

Tengd mál