Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Múlaþing
Málaflokkur
Hafnamál, Múlaþing
Undirritunardagur
23. desember 2020
Útgáfudagur
29. desember 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1381/2020
23. desember 2020
GJALDSKRÁ
fyrir hafnir Múlaþings – Borgarfjarðarhöfn.
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Borgarfjarðarhöfn er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. I. Gjaldskráin er við það miðuð að höfnin geti haft tekjur til þess að standa undir rekstri sínum, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.
3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafna Múlaþings ef þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar og njóta þjónustu hennar:
Lestargjöld: Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 16,28 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
Bryggjugjöld: Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 8,66 á mælieiningu skv. 2. gr. fyrir hverja 12 tíma sem skip liggur bundið, hámark 26 sinnum í mánuði.
Farþegagjöld: Vegna farþega sem fluttir eru í land af farþegaskipum eða fluttir með skemmtibátum kr. 175 á farþega.
Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af bátum minni en 20 brt, mánaðargjald kr. 7.070,96.
Bátar styttri en 6 m greiði kr. 5.300 á mánuði.
Önnur gjöld: Landstöðugjald fyrir báta við bátahöfn er kr. 3.000 á mánuði.
Fyrir landtengingu rafmagns greiðist samkvæmt afdráttarmæli sem bátseigandi setur upp á sinn kostnað kr. 19,60/kWst.
Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til hafna Múlaþings vegna skipsins.
Vörugjöld: Vörugjald, kr. 352 fyrir hvert tonn, skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl innan takmarka hafnarinnar.
Vörugjald greiðir móttakandi af vörum sem koma til hafnarinnar og sendandi af vörum sem fluttar eru úr höfninni.
Aflagjöld: Af öllum sjávarafla sem lagður er á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings skal greiða 1,6% af heildarverðmæti aflans.
Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarverði skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.
Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafna Múlaþings þótt hann vanræki innheimtu þess.
Vigtargjöld: Samkvæmt taxta á útseldri vinnu. Kaupandi afla stendur skil á vigtargjöldum.
Greiða skal gjöldin á bankareikning hafna Múlaþings.
4. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Borgarfjarðarhöfn var samþykkt af umhverfis- og framkvæmdaráði Múlaþings 16. desember 2020 með heimild í hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004. Gjaldskráin öðlast gildi frá og með 1. janúar 2021 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi eldri gjaldskrá nr. 99/2016.
Múlaþingi, 23. desember 2020.
Björn Ingimarsson sveitarstjóri/hafnarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 29. desember 2020