Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalvíkurbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð
Undirritunardagur
4. febrúar 2026
Útgáfudagur
5. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 109/2026
4. febrúar 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.
Deiliskipulag þjóðvegar í þéttbýli Dalvíkur.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 18. nóvember 2025 tillögu að deiliskipulagi þjóðvegar í gegnum Dalvík, skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið nær um 2,3 km leið yfir vegstæði þjóðvegar nr. 82 þar sem hann liggur í gegnum þéttbýlið á Dalvík.
Í deiliskipulagstillögunni er m.a. gerð grein fyrir legu vegstæðis, afmörkun aðliggjandi lóða, leyfilegum hámarkshraða, gatnamótum, göngu- og hjólastígum, almenningssamgöngum og bílastæðum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 41.-43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Dalvík, 4. febrúar 2026.
F.h. Dalvíkurbyggðar,
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026