Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (2012-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Ársreikningar, Staðlar

Undirritunardagur

23. október 2013

Útgáfudagur

28. október 2013

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 944/2013

23. október 2013

REGLUGERÐ

um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 313/2013 að því er varðar samstæðureikningsskil, sameiginlegt fyrirkomulag og upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum: Aðlögunarleiðbeiningar (breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðum IFRS 10, 11 og 12).

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til í lið 10ba í XXII. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013, frá 4. október 2013, um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XXII. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 313/2013 frá 4. apríl 2013 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1126/2008 um innleiðingu tiltekinna alþjóðlegra reikningsskilastaðla í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1606/2002 að því er varðar samstæðureikningsskil, sameiginlegt fyrirkomulag og upplýsingagjöf um hagsmuni í öðrum einingum: Aðlögunarleiðbeiningar (breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum IFRS 10, 11 og 12).

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 313/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 56/2013, 10. október 2013 bls. 645.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 178/2013 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 127. gr. laga nr. 3/2006, um ársreikninga, skal gilda fyrir félög sem skylt er eða nýta sér heimild til að semja ársreikninga sína og samstæðureikninga í samræmi við innleidda alþjóðlega reikningsskilastaðla, öðlast þegar gildi.

Harpa Theodórsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. október 2013.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 28. október 2013

Tengd mál