Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Vesturbyggð
Málaflokkur
Skipulagsmál, Barðastrandarsýslur
Undirritunardagur
12. mars 2026
Útgáfudagur
13. mars 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 249/2026
12. mars 2026
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Vesturbyggð.
Óveruleg breyting á deiliskipulagi Túnahverfis á Tálknafirði.
Heimastjórn Arnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 9. mars 2026 breytingu deiliskipulagi Túnahverfis á Tálknafirði. Breytingin fjallar um stækkun lóðarinnar Túngötu 40a til austurs þannig að pláss verði fyrir bílastæði við hlið hússins austan við inngang íbúðar. Tillagan var grenndarkynnt frá 14. janúar 2026 til 11. febrúar 2026.
Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Patreksfirði, 12. mars 2026.
Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026