Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Kirkjumál, Útfarir
Undirritunardagur
17. desember 2025
Útgáfudagur
22. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 88/2025
17. desember 2025
LÖG
um breytingu á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993 (rekstur líkhúsa).
1. gr.
Á eftir 1. mgr. 20. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Kirkjugarði sem starfrækir líkhús skv. 1. mgr. er heimilt að innheimta gjald fyrir geymslu líka. Við ákvörðun gjalds skal í gjaldskrá leggja til grundvallar kostnað vegna reksturs líkhússins, m.a. kostnað vegna launatengdra gjalda, húsnæðis, rafmagns, viðhalds, ræstinga, tækja, áhalda, öryggiskerfis og trygginga. Gjaldskráin skal staðfest af ráðherra.
2. gr.
Við 1. mgr. 25. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ef eftir því er leitað og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi er kirkjugarðsstjórn heimilt að taka frá grafarstæði til lengri tíma.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 17. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
A deild — Útgáfudagur: 22. desember 2025