Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. september 2023

Útgáfudagur

27. september 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1014/2023

13. september 2023

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 890/2016 um doktorsnám og doktorspróf á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað orðanna „í lok annars misseris“ í lið ii. c. í 5. gr. reglnanna koma orðin: sex mánuðum eftir innritun.

2. gr.

Orðin „siðfræði og“ í 3. málsl. 1. mgr. 9. gr. reglnanna falla brott.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 14. gr. reglnanna:

  1. 3. málsl. 1. mgr. orðast svo: Umsjónarkennari kallar doktorsnefnd saman ásamt doktorsnema innan 6 mánaða frá samþykkt rannsóknaráætlunar og svo a.m.k. tvisvar á ári meðan á náminu stendur.
  2. Núverandi 4. málsl. 1. mgr. fellur brott.
  3. Núverandi 5. málsl. 1. mgr. orðast svo: Doktorsnefnd fylgist með framvindu námsins og ber ábyrgð á því að doktorsnámið samrýmist viðmiðum og kröfum Háskóla Íslands um gæði doktorsnáms.
  4. Núverandi 6. málsl. 1. mgr. fellur brott.
  5. 3. málsl. 3. mgr. orðast svo: Umsjónarkennari hefur umsjón með ritun og skilum doktorsnefndarálitsins en það skal undirritað af öllum doktorsnefndarmönnum.

4. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglnanna:

  1. Í stað orðsins „þremur“ í lokamálslið 1. mgr. kemur orðið: fjórum.
  2. Í stað orðsins „sex“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur orðið: átta.
  3. 3. málsl. 2. mgr. fellur brott.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. reglnanna:

  1. 8. málsl. 1. mgr. orðast svo: Prentuðum eintökum doktorsritgerðar skal skilað á skrifstofu heilbrigðisvísindasviðs og rafrænu eintaki á Landsbókasafn-Háskólabókasafn.
  2. Á eftir 8. málsl. 1. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Um fjölda prentaðra eintaka vísast til leiðbeininga heilbrigðisvísindasviðs.
  3. 2. málsl. liðar a. orðast svo: Slík ritgerð skal byggð á ígildi a.m.k. þriggja vísindagreina í viðurkenndum ritrýndum tímaritum.
  4. 3. málsl. liðar a. orðast svo: Ekki færri en ein grein skal vera endanlega samþykkt til birtingar af ritstjórn ritrýnds tímarits.
  5. Á eftir 3. málsl. liðar a. bætast við tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Skal doktorsefni vera fyrsti höfundur að þeirri grein en þó að jafnaði að öllum þremur greinunum. Deildir geta í sérreglum gert ríkari kröfur til ritgerðar en þær sem að framan greinir.
  6. Á eftir orðinu „þeim“ í núverandi 4. málsl. liðar a. bætast við orðin: og er í samræmi við viðurkennda staðla, þ.m.t. kerfisbundnar samantektir (systematic review), safngreiningar (meta-analysis) og aðferðafræðilegar rannsóknir.
  7. Núverandi 6. málsl. liðar a. fellur brott.
  8. Í stað orðsins „doktorsnámsnefnd“ í 3. málsl. liðar b. koma orðin: fastanefnd deildar.
  9. 4. málsl. liðar b. fellur brott.

6. gr.

Reglur þessar eru settar af háskólaráði með heimild í lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Reglurnar hafa verið samþykktar af deildum heilbrigðisvísindasviðs, stjórn fræðasviðsins og Miðstöð framhaldsnáms, sbr. 66. og 69. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglur þessar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 13. september 2023.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. september 2023

Tengd mál