Upplýsingar um auglýsingu
Deild
C deild
Stofnun
Utanríkisráðuneytið
Málaflokkur
Fjölþjóðasamningar
Undirritunardagur
26. janúar 2026
Útgáfudagur
10. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1/2026
26. janúar 2026
AUGLÝSING
um samning undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins á svæðum utan lögsögu ríkja.
Hinn 17. desember 2025 var Sameinuðu þjóðunum afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins á svæðum utan lögsögu ríkja, sem gerður var í New York 19. júní 2023.
Samningurinn öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 17. janúar 2026 og er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 26. janúar 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Bergdís Ellertsdóttir.
C deild — Útgáfudagur: 10. febrúar 2026