Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
22. janúar 2026
Útgáfudagur
5. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 110/2026
22. janúar 2026
SKIPULAGSSKRÁ
Sigurhæða, sjálfseignarstofnunar.
1. gr. Nafn og heimilisfang.
Sjálfseignarstofnunin heitir Sigurhæðir, sjálfseignarstofnun, og starfar skv. lögum nr. 19/1988. Stofnunin stundar ekki atvinnurekstur.
Heimili og varnarþing félagsins er í Sveitarfélaginu Árborg.
2. gr. Tilgangur.
Sigurhæðir voru stofnaðar í mars 2021 af Soroptimistaklúbbi Suðurlands undir dyggri forystu Hildar Jónsdóttur, klúbbsystur og fyrsta verkefnisstjóra Sigurhæða. Með því að valdefla konur sem vilja vinna sig frá afleiðingum kynbundins ofbeldis og auka vitund og þekkingu á umfangi og eðli kynbundins ofbeldis meðal samstarfsaðila og almennings, starfar klúbburinn í anda Soroptimista um allan heim og heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Tilgangur starfsemi Sigurhæða er að vinna gegn kynbundnu ofbeldi í nærsamfélagi sínu með því að bjóða upp á samhæfða þjónustu við þolendur 18 ára og eldri og aðstandendur þeirra í formi fræðslu, stuðnings, ráðgjafar og meðferðar vegna ofbeldis og afleiðinga þess. Markmið starfseminnar er einnig að auka aðgengi að lögreglu og lögfræðilegri ráðgjöf og samstarfi við aðila sem koma að málum. Lagt er upp með að öll þjónusta sé þolendum og aðstandendum þeirra að kostnaðarlausu og er áhersla lögð á persónuleg, fagleg og traust vinnubrögð. Trúnaður ríkir hjá öllum þeim sem koma að þjónustunni gagnvart notendum.
Ráðstafa skal fjármunum sjálfseignarstofnunarinnar til að standa straum af rekstri framangreindrar þolendamiðstöðvar og fræðslu tengdri starfseminni.
3. gr. Aðalstarfsemi.
Sigurhæðir er þjónustumiðstöð þar sem sérmenntaðir meðferðaraðilar veita stuðning, ráðgjöf og fræðslu ásamt einstaklings- og hópmeðferð fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og aðstandendur þeirra. Þolandinn hefur greiðan aðgang að þjónustunni og á rétt á þjónustu eins lengi og þörf þykir. Þjónustuþörf hvers og eins er metin í samvinnu milli þolanda og fagaðila. Samvinna er við lögreglu, velferðarþjónustu, heilbrigðisstarfsfólk og aðra aðila sem koma að málum þolandans.
Þjónustan er í höndum sérmenntaðra meðferðaraðila, framkvæmdastjóra og sjálfboðaliða úr röðum Soroptimistaklúbbs Suðurlands. Soroptimistaklúbburinn ásamt framkvæmdastjóra sjá um rekstur, fjáröflun, viðburði og annað utanumhald auk þess að manna móttökuvaktir í Sigurhæðum. Meðferðarstarf, fræðsla, samstarf og þróun er í höndum meðferðarstýru og framkvæmdastjóra. Samstarf er við sveitarfélögin á Suðurlandi, lögreglustjóraembættin á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Birtu starfsendurhæfingu og aðra aðila sem sinna málaflokknum á landsvísu.
Sjálfboðastarf er mikilvægur þáttur í starfi Sigurhæða þar sem klúbbsystur Soroptimista á Suðurlandi taka að sér vaktir og almennt utanumhald í daglegu starfi Sigurhæða.
4. gr. Húsnæði.
Stjórn, ásamt framkvæmdastjóra, sér um að húsnæði Sigurhæða sé tryggt og mæti þörfum starfseminnar. Soroptimistaklúbbur Suðurlands hefur aðgang að húsnæðinu fyrir sína starfsemi.
5. gr. Stofnandi og stofnfé.
Sigurhæðir hófu starfsemi 20. mars 2021, en voru þá reknar í nafni og á kennitölu Soroptimistaklúbbs Suðurlands, kt. 620210-1370, sem jafnframt er stofnaðili sjálfseignarstofnunar þessarar.
Stofnfé Sigurhæða, sjálfseignarstofnunar, er 1.670.000 kr., sem er framlag stofnanda. Við stofnun mun jafnframt annað fé sem eyrnamerkt er rekstri Sigurhæða á reikningum stofnanda verða afhent stofnuninni.
Stofnfé er óskerðanlegt.
Sigurhæðir bera einar ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum þeim eignum sem þær kunna að eignast síðar. Stofnandi nýtur engra sérréttinda í Sigurhæðum.
Allir núgildandi samningar, svo sem þjónustusamningar, leigusamningar, verksamningar og annað sem í gildi er milli Soroptimistaklúbbs Suðurlands og þriðja aðila vegna starfsemi Sigurhæða skulu við stofnun færast yfir á sjálfseignarstofnunina.
6. gr. Tekjur.
Tekjur Sigurhæða eru fjármagnstekjur, styrkir, gjafir og önnur framlög sem þeim berast.
7. gr. Fulltrúaráð.
Fulltrúaráð Sigurhæða skal skipað níu fulltrúum. Stjórn Soroptimistaklúbbs Suðurlands skipar tvo fulltrúa auk formanns klúbbsins sem er sjálfskipaður hverju sinni, Samband sunnlenskra kvenna skipar einn fulltrúa, Heilbrigðisstofnun Suðurlands einn fulltrúa, lögreglustjóraembættin á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum skipa saman einn fulltrúa, sýslumannsembættin á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum skipa saman einn fulltrúa, Samtök sunnlenskra sveitarfélaga skipa einn fulltrúa og loks skal einn fulltrúi koma úr röðum notenda.
Skipunartími fulltrúa skal vera tvö ár og miðast við 1. júní ár hvert. Þeim aðilum sem skipa fulltrúa er heimilt að skipta um fulltrúa sína hvenær sem er á skipunartímanum. Samfelldur skipunartími einstakra fulltrúa skal vera að hámarki 8 ár. Til að skörun myndist skal skipa fimm fulltrúa á oddatölu ári og fjóra fulltrúa á slétttölu ári. Fyrsta fulltrúaráð skal skipað á stofnfundi, fjóra fulltrúa út maímánuð 2026 og fjóra fulltrúa út maímánuð 2027. Skipunartími hins sjálfskipaða formanns fulltrúaráðsins fylgir skipunartíma hans sem formanns Soroptimistaklúbbs Suðurlands.
Formaður Soroptimistaklúbbs Suðurlands er formaður fulltrúaráðsins, stýrir fundum og skipuleggur starfsemi þess í samstarfi við stjórnarformann Sigurhæða.
8. gr. Hlutverk fulltrúaráðs.
Hlutverk fulltrúaráðsins er einkum að:
- Vera tengiliður á milli stjórnar og þeirra aðila sem skipa í fulltrúaráð Sigurhæða.
- Fylgjast með rekstri Sigurhæða og samþykkja ársreikninga.
- Skipa stjórnarmenn og endurskoðanda og hafa eftirlit með störfum þeirra.
- Viðhalda samþykktum og setja nauðsynlegar reglur um starfsemi Sigurhæða.
Við val á stjórnarmönnum skal fulltrúaráð vera í sambandi við þá aðila sem geta lagt til fulltrúa í stjórn.
Stjórn Sigurhæða skal annast um og fylgja eftir að samþykktum fulltrúaráðs sé framfylgt.
9. gr. Fundir fulltrúaráðs.
Fastir fundir fulltrúaráðs skulu vera tveir á ári. Aðalfundur skal haldinn fyrir lok maí á hverju ári og haustfundur skal haldinn fyrir lok nóvember á hverju ári.
Aukafund skal halda innan tíu daga að kröfu meirihluta fulltrúaráðs, meirihluta stjórnar, framkvæmdastjóra eða endurskoðanda.
Formaður fulltrúaráðs boðar til fulltrúaráðsfundar með minnst tveggja vikna fyrirvara. Fundarboð skal sent öllum fulltrúaráðsmönnum í formi tölvupósts eða á annan sannanlegan hátt og skal dagskrár getið í fundarboði.
Fundur fulltrúaráðsins er lögmætur ef boðað hefur verið til hans með lögmætum hætti og meira en helmingur fulltrúaráðsmanna er viðstaddur.
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála á fulltrúaráðsfundum, nema lög eða skipulagsskrá þessi kveði á um annað. Atkvæði formanns fulltrúaráðs ræður úrslitum falli atkvæði jöfn.
Hver fulltrúi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fulltrúaráðsfundi ef hann gerir skriflega kröfu um það til formanns fulltrúaráðs með sjö daga fyrirvara fyrir fulltrúaráðsfund.
Fulltrúaráðið setur sér starfsreglur.
10. gr. Aðalfundur fulltrúaráðs.
Fastir dagskrárliðir aðalfundar skulu jafnan vera:
- Skýrsla stjórnar og framkvæmdastjóra um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Endurskoðaður ársreikningur liðins starfsárs kynntur og lagður fram til samþykktar.
- Kosning stjórnar.
- Kosning endurskoðanda.
- Tillögur um breytingar á skipulagsskrá stofnunarinnar, löglega upp bornar skv. 18. gr.
- Önnur mál.
11. gr. Haustfundur fulltrúaráðs.
Fastir dagskrárliðir haustfundar skulu jafnan vera:
- Kynning á starfsemi félagsins.
- Yfirlit um rekstur líðandi árs og rekstrar- og fjárhagsáætlanir komandi árs.
- Önnur mál.
12. gr. Stjórn.
Stjórn Sigurhæða skal skipuð fimm aðalmönnum og tveimur til vara. Skulu tveir aðalmenn tilnefndir af Soroptimistaklúbbi Suðurlands, einn af Heilbrigðisstofnun Suðurlands, einn sameiginlega af lögreglustjóraembættunum á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum sem og sýslumannsembættunum á Suðurlandi og Vestmannaeyjum og einn af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Annar varamanna skal tilnefndur af Soroptimistaklúbbi Suðurlands og hinn af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.
Stjórnarmenn skulu vera lögráða og hafa forræði á búi sínu. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu á hverjum tíma uppfylla lögbundin hæfisskilyrði til setu í stjórn stofnunarinnar. Missi stjórnarmenn, framkvæmdastjóri eða skipaður fjárvörsluaðili hæfi til stjórnarsetu skulu þeir upplýsa sýslumann um það. Stjórnarmenn, framkvæmdastjóri og skipaður fjárvörsluaðili skulu skýra satt og rétt frá högum stofnunarinnar í opinberum auglýsingum eða tilkynningum, skýrslum, ársreikningi eða tilkynningum til sýslumanns.
Skal einn stjórnarmaður vera formaður stjórnar og annar varaformaður, sem jafnframt skal vera gjaldkeri og skulu þeir skipaðir sérstaklega af fulltrúaráði. Aðrir stjórnarmenn eru meðstjórnendur.
Stjórnarmenn skulu skipaðir til tveggja ára í senn, miðað við 1. júní, en fulltrúaráði er heimilt að víkja stjórnarmanni frá og skipa annan í hans stað innan stjórnartíma, sbr. 4. mgr. Samfelldur skipunartími stjórnarmanns skal að hámarki vera 8 ár.
Löglegur fulltrúaráðsfundur getur afturkallað skipun stjórnarmanns, eins eða fleiri, hvenær sem er innan stjórnartíma og skipað annan stjórnarmann í hans stað. Sé stjórnarmaður skipaður með þessum hætti skal skipunartími hans standa til loka yfirstandandi stjórnartíma.
Stjórn skal sjá til þess að skipulag og starfsemi Sigurhæða sé í réttu og góðu horfi.
Fyrsta stjórn Sigurhæða, sjálfseignarstofnunar, skal kosin á stofnfundi. Skulu þrír kjörnir í stjórn til loka maímánaðar 2026 og tveir til loka maímánaðar 2027. Þá skal annar varamanna kjörin til loka maímánaðar 2026 og hinn til loka maímánaðar 2027.
Stjórnin setur sér starfsreglur.
Undirskrift þriggja stjórnarmanna skuldbindur Sigurhæðir gagnvart þriðja aðila. Stjórn ber ábyrgð á fjárvörslu og getur veitt prókúruumboð fyrir Sigurhæðir.
13. gr. Fundir stjórnar.
Framkvæmdastjóri í samvinnu við formann skal boða til fyrsta stjórnarfundar nýskipaðrar stjórnar eigi síðar en 15 dögum eftir upphaf nýs stjórnartíma. Boðað skal til fundarins með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti með minnst fimm daga fyrirvara. Forfallist aðalmaður skal hann tilkynna það framkvæmdastjóra þegar í stað og skal varamaður þá boðaður í hans stað. Sé framkvæmdastjóri ekki starfandi eða sé forfallaður skal formaður stjórnar annast boðun fyrsta stjórnarfundar nýskipaðrar stjórnar.
Á fyrsta fundi nýskipaðrar stjórnar skal stjórn samþykkja starfsreglur þar sem kveðið skal á um boðun stjórnarfunda og störf stjórnar að öðru leyti.
Stjórnarfundur er lögmætur ef boðað hefur verið til hans með lögmætum hætti og meira en helmingur stjórnarmanna er viðstaddur.
Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála á stjórnarfundi, nema lög eða skipulagsskrá þessi kveði á um annað. Atkvæði stjórnarformanns ræður úrslitum falli atkvæði jöfn.
Framkvæmdastjóri Sigurhæða og meðferðarstýra undirbúa fundi í samráði við formann og eru starfsmenn fundanna. Framkvæmdastjóri sér um ritun fundargerða stjórnarfunda.
14. gr. Framkvæmdastjóri.
Stjórn ræður framkvæmdastjóra og ákveður starfskjör hans. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur félagsins. Hann sér um reikningshald, ráðningu starfsfólks, skipulag viðburða auk tekjuöflunar. Framkvæmdastjóri situr stjórnarfundi, hefur málfrelsi og tillögurétt. Honum ber að veita stjórnarmönnum og endurskoðendum þær upplýsingar um rekstur félagsins sem þeir kunna að óska eftir og veita ber samkvæmt lögum.
15. gr. Meðferðarstýra.
Stjórn ræður meðferðarstýru sem er sérmenntaður meðferðaraðili og ákveður starfskjör hennar. Meðferðarstýra annast skipulag og utanumhald faglegs meðferðarstarfs. Meðferðarstýra situr stjórnarfundi, hefur málfrelsi og tillögurétt. Henni ber að veita stjórnarmönnum þær upplýsingar um faglegt meðferðarstarf félagsins sem þeir kunna að óska eftir, þó að gættum trúnaði við þolendur.
16. gr. Persónuvernd.
Stofnunin vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Upplýsingar eru einungis notaðar í þeim tilgangi sem nauðsynlegur er fyrir starfsemi stofnunarinnar og verður ekki miðlað til þriðja aðila nema lög kveði á um það eða samþykki liggi fyrir. Stofnuninn tryggir viðeigandi öryggisráðstafanir til að vernda upplýsingar og virðir réttindi einstaklinga í samræmi við gildandi lög.
17. gr. Reikningar og endurskoðun.
Stofnunin skal færa bókhald um starfsemi sína. Stjórn, framkvæmdastjóri eða fjárvörsluaðili stofnunarinnar skal semja ársreikning fyrir hvert reikningsár í samræmi við lög um bókhald nr. 145/1994.
Ákvæði laga um bókhald gilda um hæfi og störf skoðunarmanna og trúnaðarmanna. Trúnaðarmenn mega ekki sitja í stjórn eða gegna stjórnunarstörfum fyrir stofnunina.
Reikningsár félagsins skal vera almanaksárið. Fyrsta reikningstímabil stofnunarinnar skal þó vera frá stofnun hennar til ársloka 2026. Ársreikningar skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðendum í samræmi við lög, reglur og settar reikningsskilareglur. Um kjör endurskoðanda fer eftir ákvæði 4. tl. 1. mgr. 10. gr. skipulagsskrár þessarar. Endurskoðanda má ekki kjósa úr hópi stjórnarmanna eða starfsmanna félagsins. Stjórn félagsins skal leggja ársreikning fyrir aðalfund fulltrúaráðs félagsins fyrir lok maí ár hvert.
Ákvæði laga um endurskoðendur og endurskoðun gilda um hæfi og störf endurskoðenda og endurskoðendafyrirtækja.
Ársreikningur skal fullgerður og undirritaður eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Ársreikningur skal lagður fram á stjórnarfundi stofnunar til samþykktar. Senda skal sýslumanni áritaðan ársreikning fyrir næstliðið ár eigi síðar en 31. ágúst ár hvert.
18. gr. Hagnaður og tap.
Starfsemin er óhagnaðardrifin. Ef hagnaður verður af starfsemi félagsins skal honum varið til verkefna í samræmi við 2. gr. skipulagsskrár þessarar. Þó er stjórn heimilt að leggja til hliðar sanngjarna fjárhæð til að tryggja fjárhagsstöðu og áframhaldandi rekstur félagsins. Hugsanlegt tap af starfsemi verður annaðhvort greitt úr sjóðum þess eða fært á næsta reikningsár.
19. gr. Breytingar á skipulagsskrá.
Skipulagsskrá þessari verður ekki breytt nema með samþykki fjögurra stjórnarmanna og samþykki ⅔ fulltrúa á löglegum fulltrúaráðsfundi.
20. gr. Slit.
Með tillögum um slit og skipti á félaginu, eða eftir atvikum sameiningar þess við aðra sjálfseignarstofnun, skal fara sem um breytingar á skipulagsskrá þessari. Slíkt skal svo borið skriflega undir embætti sýslumanns. Komi til þess að félagið verði lagt niður skal hrein eign þess renna til sambærilegra verkefna og tilgreind eru í 2. gr. eftir nánari ákvörðun stjórnar.
21. gr. Staðfesting.
Leita skal staðfestingar sýslumanns á skipulagsskrá þessari.
Um þau atriði sem ákvæði skipulagsskrár þessarar ná ekki til skal hlíta ákvæðum laga, þ.m.t. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
Samþykkt á stofnfundi Sigurhæða, sjálfseignarstofnunar, á Hellu, 15. desember 2025.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Vestfjörðum, 22. janúar 2026.
Thelma Dögg Theodórsdóttir.
Helga Haraldsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026