Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Seðlabanki Íslands
Málaflokkur
Fjármálastarfsemi
Undirritunardagur
7. apríl 2020
Útgáfudagur
8. apríl 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 323/2020
7. apríl 2020
REGLUR
um eiginfjárauka fyrir fjármálafyrirtæki vegna kerfisáhættu.
1. gr. Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem skylt er að viðhalda eiginfjárauka vegna kerfisáhættu samkvæmt 86. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
2. gr. Gildi eiginfjárauka fyrir kerfisáhættu.
Fjármálafyrirtæki sem hafa heimild til móttöku innlána skulu viðhalda eiginfjárauka vegna kerfisáhættu sem nemur 3% af áhættugrunni, vegna innlendra áhættuskuldbindinga. Eiginfjáraukanum skal einnig viðhaldið á samstæðugrunni, eftir því sem við á.
3. gr. Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 1. mgr. 86. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, hafa verið samþykktar af fjármálastöðugleikanefnd og öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 7. apríl 2020.
| Ásgeir Jónsson | Rannveig Júníusdóttir | |
| seðlabankastjóri. | framkvæmdastjóri. |
B deild - Útgáfud.: 8. apríl 2020