Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Svalbarðsstrandarhreppur
Málaflokkur
Skipulagsmál, Þingeyjarsýslur
Undirritunardagur
26. mars 2026
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 365/2026
26. mars 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Svalbarðsstrandarhreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsbreytingu:
Íbúðarbyggð á Svalbarðseyri – deiliskipulagsbreyting, breytt skipulagsmörk.
Í breytingunni felst að skipulagsmörk norðan leikskóla hliðrast um u.þ.b. 15 m til norðurs vegna fyrirhugaðrar stækkunar á leikskóla og leikskólalóð. Jafnframt er gerð lítilsháttar hliðrun á skipulagsmörkum vestan leikskóla til samræmis við núverandi lóðarmörk leikskólalóðar og lega útivistarstígs norðan lóðarinnar breytist lítillega vegna breyttra skipulagsmarka. Að öðru leyti gildir áfram greinargerð gildandi deiliskipulags.
Samþykkt í sveitarstjórn 24. júní 2025.
Ofangreind tillaga hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. Svalbarðsstrandarhrepps, 26. mars 2026.
Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026