Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Málaflokkur
Sjóðir og stofnanir, Skipulagsskrár
Undirritunardagur
6. desember 2022
Útgáfudagur
20. desember 2022
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1433/2022
6. desember 2022
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.
1. gr.
Hjálparstarf kirkjunnar er sjálfseignarstofnun sem stofnuð var af þjóðkirkjunni á Íslandi þann 9. janúar 1970 og starfar á hennar vegum. Heimili og varnarþing er í Reykjavík. Biskup Íslands er verndari stofnunarinnar. Merki hennar er fiskur og kross í skál, blátt að lit.
2. gr.
Stofnunin er aðili að hjálparstarfi Lútherska heimssambandsins, Alkirkjuráði og alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna (ACT Alliance). Jafnframt getur stofnunin starfað með innlendum og erlendum kirkjum, innlendum og erlendum félagasamtökum, mannúðar- og hjálparsamtökum. Á erlendum málum er heiti stofnunarinnar: Icelandic Church Aid, skammstafað ICA, og Kirkens Nödhjelp i Island.
3. gr.
Stofnfé stofnunarinnar var við setningu skipulagsskrár fyrir hana 19. desember 1989 kr. 300.000, - þrjú hundruð þúsund krónur. Upphaflegt stofnfé var lagt fram af prestum þjóðkirkjunnar, sbr. samþykkt prestastefnu 1969.
4. gr.
Hlutverk Hjálparstarfs kirkjunnar er að starfrækja mannúðar- og hjálparstarf í nafni þjóðkirkjunnar innanlands sem utan og fræða íslenskan almenning um það á ýmsum vettvangi. Stofnunin setur saman og miðlar markvisst fræðsluefni um hjálparstarf til barna, unglinga og fullorðinna í gegnum skóla og kirkjur og gerir þannig hjálparstarfið sýnilegra. Hlutverk Hjálparstarfs kirkjunnar er meðal annars rækt með eftirfarandi hætti:
A. Innanlands.
- Að veita aðstoð í neyðartilfellum.
- Að greina vanda og veita félagslega ráðgjöf og efnislega aðstoð ásamt því að beina skjólstæðingum þangað sem þeir geta vænst aðstoðar sem stofnunin veitir ekki beint.
- Að leitast við að afla nákvæmra upplýsinga um einstaklinga og málefni sem ástæða er til að styrkja, í sem nánustu samráði við presta, félagsþjónustu og aðra tengda aðila.
- Að vera prestum, djáknum, söfnuðum og líknarfélögum til aðstoðar í líknarþjónustu þeirra og vinna með þeim að sameiginlegri úrlausn mála einstakra skjólstæðinga.
- Að upplýsa almenning og stjórnvöld um kjör þeirra sem eru í nauðum staddir og vera málsvari þeirra.
B. Erlendis.
- Að veita mannúðaraðstoð þar sem neyðarástand hefur skapast og útrýma fátækt og hungri og stuðla að félagslegri þróun með verkefnum í þróunarsamvinnu.
- Að stuðla að því að mannréttindi séu virt.
- Að vinna með íslenskum stjórnvöldum og fagaðilum að faglegri framkvæmd hjálparstarfs og stuðla að auknum stuðningi almennings við þróunarsamvinnu.
- Að vera talsmenn undirokaðra gagnvart íslenskum almenningi og stjórnvöldum.
C. Fræðsla.
Til þess að ná þessum markmiðum skal Hjálparstarf kirkjunnar standa fyrir fræðslustarfi.
Þar skal stefnt að því að fræða landsmenn um gildi þróunarsamvinnu og um mannúðar- og mannréttindamál. Jafnframt skal veita landsmönnum upplýsingar um hjálparstarf stofnunarinnar á hverjum tíma. Enn fremur skal leitast við að fræða um sérstöðu Hjálparstarfs kirkjunnar sem kirkjulegrar stofnunar og kenna grundvallaratriði í afstöðu kristinna manna til þurfandi meðbræðra.
5. gr.
Hjálparstarf kirkjunnar veitir aðstoð sína án tillits til hverjir viðtakendur eru og hver sé orsök neyðarinnar.
6. gr.
Enginn getur krafist aðstoðar frá Hjálparstarfi kirkjunnar.
7. gr.
Tekjur Hjálparstarfs kirkjunnar eru m.a.:
- Framlög styrktarmanna, fyrirtækja og opinberra aðila.
- Tekjur af almennum söfnunum.
- Framlög frá einstaklingum og stofnunum.
- Vaxtatekjur og fleira.
8. gr.
Fé, sem safnað er til sérstakra verkefna, skal renna til þeirra óskipt að frádregnum söfnunarkostnaði og framlagi í rekstrar- og fræðslusjóð. Fé stofnunarinnar skal ávaxta á sem hagkvæmastan hátt. Reikningsyfirlit hverrar einstakrar söfnunar, þ.e. yfirlit yfir innkomið söfnunarfé, kostnað, laun og ráðstöfun fjárins, skal fært sérstaklega í bókhaldi stofnunarinnar sem sjálfstæð eining. Stjórn stofnunarinnar skal sjá um að birta reikningsyfirlit einstakra safnana í samræmi við fyrirmæli gildandi laga um opinberar fjársafnanir hverju sinni.
9. gr.
Rekstrar- og stjórnunarkostnaður Hjálparstarfs kirkjunnar, skal greiddur úr rekstrarsjóði. Tekjur sjóðsins eru:
- Að jafnaði 8% af öllu söfnunarfé. Hlutfall verði ákvarðað hverju sinni af stjórn.
- Framlög opinberra aðila.
- Framlög fyrirtækja, stofnana, sókna og sóknarpresta.
- Fjármagn, sem fæst eftir sérstökum fjáröflunarleiðum.
- Vextir.
Allt annað söfnunarfé skal renna í almennan söfnunarsjóð. Í bókhaldi skal tilgreint í hvaða verkefni söfnunarfé skuli varið.
Um fulltrúaráð og stjórn.
10. gr.
Yfirstjórn Hjálparstarfs kirkjunnar er í höndum fulltrúaráðs, sem þannig er skipað:
- Fimm menn skipaðir af biskupi Íslands til tveggja ára. Tveir varamenn eru skipaðir með sama hætti.
- Hvert prófastsdæmi landsins kýs einn mann í fulltrúaráð og annan til vara. Skulu þeir kjörnir á héraðsfundum til tveggja ára í senn.
- Hverri sókn er heimilt að tilnefna einn mann í fulltrúaráð og annan til vara. Skulu þeir tilnefndir af sóknarnefnd til tveggja ára í senn. Í prestaköllum þar sem búa færri en 2.000 manns geta sóknir prestakallsins sameinast um einn fulltrúa.
11. gr.
Stjórn fulltrúaráðsins skal kosin á aðalfundi stofnunarinnar. Kjósa skal formann og tvo aðra til eins árs í senn. Formaður skal vera úr hópi þeirra sem skipaður er af biskupi Íslands. Í varastjórn skal kjósa tvo menn til eins árs í senn. Fulltrúaráð kýs tvo skoðunarmenn til eins árs í senn. Fulltrúaráðið setur stjórninni og skoðunarmönnunum starfsreglur.
12. gr.
Stjórnin ber ábyrgð á daglegum rekstri stofnunarinnar. Hún heldur eigi færri en átta fundi árlega. Afl atkvæða ræður úrslitum á öllum fundum.
13. gr.
Stjórnin ræður framkvæmdastjóra stofnunarinnar, ákveður ráðningarkjör hans og setur honum erindisbréf. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur stofnunarinnar, gætir fjár hennar og annast greiðslur hennar samkvæmt ákvörðun stjórnar svo sem nánar er tilgreint í erindisbréfi hans. Framkvæmdastjóri gerir ár hvert í samráði við stjórn, starfs- og fjárhagsáætlun fyrir komandi reikningsár og kynnir á aðalfundi.
14. gr.
Reikningsárið er frá 1. júlí til 30. júní og skulu reikningar, endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og kjörnum skoðunarmönnum, lagðir fram á aðalfundi til umræðu og samþykktar.
Um aðalfund og aðra fundi.
15. gr.
Fulltrúaráð skal koma saman til fundar a.m.k. tvisvar sinnum á ári, á fyrri og síðari árshelmingi og skal síðari fundurinn vera aðalfundur stofnunarinnar. Til aðalfundar skal boðað með bréfi eða tölvupósti til hvers fulltrúa með 14 daga fyrirvara. Aðalfundur er lögmætur ef rétt er til hans boðað.
Rétt til setu á aðalfundi eiga:
- Fulltrúaráð.
- Verndari stofnunarinnar.
- Fráfarandi stjórnarmenn, þeir sem ekki eru lengur í fulltrúaráði með málfrelsi og tillögurétt, meðan fjallað er um skýrslu stjórnar og reikninga.
- Framkvæmdastjóri með málfrelsi og tillögurétt.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Lesin upp nöfn þeirra sem rétt eiga til fundarsetu.
- Starfsskýrslur undanfarins árs.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.
- Breytingar á skipulagsskrá ef fyrir liggja, enda hafi þess verið getið í fundarboði.
- Starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs kynnt.
- Stjórnarkjör samkvæmt 11. gr.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga stofnunarinnar.
- Önnur mál.
Afl atkvæða ræður úrslitum á aðalfundi. Aukafund skal halda þegar þurfa þykir eða ef helmingur fulltrúaráðs óskar þess.
16. gr.
Héraðskjörnir fulltrúaráðsmenn skulu leggja fram skýrslu á héraðsfundum um starfsemi Hjálparstarfs kirkjunnar. Kjörnir fulltrúar skulu ásamt sóknarprestum vera tengiliðir safnaða og Hjálparstarfs kirkjunnar.
17. gr.
2/3 hlutar fulltrúaráðs geta ákveðið að leggja Hjálparstarf kirkjunnar niður og skulu þá allar eigur hennar renna til líknarmála á vegum kirkjunnar, eftir nánari ákvörðun stjórnar og fulltrúaráðs.
18. gr.
Tillögur um breytingar á skipulagsskrá þessari ná fram að ganga, ef þær hljóta fylgi 2/3 hluta atkvæða á aðalfundi og staðfestingu hlutaðeigandi stjórnvalda.
Skipulagsskrá þessi var samþykkt á aðalfundi Hjálparstarfs kirkjunnar 24. september 2022. Við staðfestingu á þessari skipulagsskrá fellur úr gildi eldri skipulagsskrá nr. 327/1992 með síðari breytingum nr. 250/2004 og 1281/2018.
Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.
F.h. sýslumannsins á Norðurlandi vestra, 6. desember 2022,
Björn Hrafnkelsson.
Auður Steingrímsdóttir.
B deild - Útgáfud.: 20. desember 2022