Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Gæludýr, Ísafjarðarbær

Undirritunardagur

4. febrúar 2026

Útgáfudagur

19. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 163/2026

4. febrúar 2026

SAMÞYKKT

um hundahald í Ísafjarðarbæ.

I. KAFLI Meginreglur og skyldur umráðamanns.

1. gr. Gildissvið.

Samþykkt þessi gildir um hundahald í Ísafjarðarbæ og sætir þeim takmörkunum sem getið er í samþykkt þessari.

Þéttbýli sem um ræðir í samþykkt þessari eru Ísafjörður, Hnífsdalur, Suðureyri, Flateyri og Þingeyri.

Um almennan aðbúnað og velferð gæludýra sem og um ræktun, verslun, geymslu og leigu hunda gilda ákvæði laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Samkvæmt lögum um velferð dýra fer Matvælastofnun með eftirlit og framkvæmd þeirra laga.

2. gr. Stjórnsýsla.

Heilbrigðisnefnd Vestfjarða hefur eftirlit með framkvæmd samþykktar þessarar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd Ísafjarðarbæjar fer með framkvæmd samþykktar þessarar í umboði heilbrigðisnefndar, nema sérstaklega sé getið um eftirlit heilbrigðisnefndarinnar. Umhverfis- og eignasvið Ísafjarðarbæjar annast verkefni samþykktarinnar undir yfirumsjón umhverfis- og framkvæmdanefndar, en nefndin getur auk þess ákveðið að ráða sérstaka dýraeftirlitsmenn eða falið starfsmönnum sveitarfélagsins hlutverk eftirlitsaðila.

Dýraeftirlitsmenn geta leitað aðstoðar heilbrigðisnefndar Vestfjarða, Matvælastofnunar og lögregluyfirvalda, ef og þegar þörf krefur, t.d. ef hundur er að mati eftirlitsins hættulegur umhverfi sínu, vörsluaðili hunds tálmar starfi eftirlitsaðila samkvæmt samþykkt þessari eða þegar nauðsynlegt er vegna almannahagsmuna, dýravelferðar eða heilbrigðis- og öryggissjónarmiða, að leita atbeina lögreglu við að fjarlægja hund.

II. KAFLI Skyldur aðila.

3. gr. Almennar skyldur hundaeigenda.

Allir hundar í Ísafjarðarbæ eru leyfisskyldir og skal skrá þá á nafn og lögheimili lögráða umráðamanns í sveitarfélaginu. Viðkomandi einstaklingur er skráður umráðamaður dýrsins og er ábyrgur fyrir umsjón þess og skal dýrið haldið á heimili hans.

Eigendum hunda ber að sjá til þess að umhirða dýra þeirra sé í samræmi við ákvæði laga nr. 55/2013, um velferð dýra og 18. gr. reglugerðar nr. 80/2016, um velferð gæludýra. Einnig ber þeim að fylgja ákvæðum annarra laga, reglugerða og samþykkta sem um gæludýrahald kunna að gilda.

Eigendum og umráðamönnum hunda ber, eftir því sem framast er unnt, að sjá svo um að dýr þeirra valdi ekki hættu, hávaða, ónæði, óþrifnaði eða óhollustu, t.d. með stöðugu og ítrekuðu gelti eða ýlfri. Ef hundur veldur nágrönnum eða öðrum ítrekuðu ónæði, óþrifum eða tjóni, þá ber eiganda eða umráðamanni dýrsins að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt.

Eiganda eða umráðamanni hunds er ávallt skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.

Umráðamaður skal gæta þess að fara ekki með hund í aðstæður sem líklegt er að ógni ró hundsins eða valdi honum vanlíðan, s.s. fjölmennar samkomur og hávaða.

Eigendum hunda er skylt að ábyrgðartryggja sig gegn tjóni sem dýr þeirra kunna að valda mönnum, dýrum, gróðri og munum og skulu framvísa til sveitarfélagsins staðfestingu frá viðurkenndu tryggingafélagi við umsókn um leyfi, sé sveitarfélagið ekki með hóptryggingu innifalda í leyfisgjaldi.

Í þeim tilgangi að fyrirbyggja sýkingar af völdum spóluorma í hundum, sbr. 42. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, er eiganda eða umráðamanni hunda skylt að láta ormahreinsa hund sé þess þörf. Ef smit sjúkdóma eða sníkjudýra kemur upp skal umráðamaður án tafar leita meðferðar fyrir dýr og grípa til aðgerða til að hindra smitdreifingu.

III. KAFLI Skráningarskylda, umsjón og eftirlit.

4. gr. Leyfisskylda.

Allir hundar eru leyfisskyldir hjá Ísafjarðarbæ. Skylt er að sækja um leyfi til Ísafjarðarbæjar innan tveggja vikna frá því að hundur er tekinn inn á heimili. Sækja skal um leyfi fyrir hvolpa eigi síðar en þegar þeir ná 16 vikna aldri.

Ekki er heimilt að halda fleiri en þrjá hunda á sama heimili, séu þeir eldri en 16 vikna. Útgefið leyfi gildir á meðan hundur lifir fái hann ekki nýjan umráðamann eða flytji úr sveitarfélaginu. Leyfi er óframseljanlegt.

Hundar skulu örmerktir af dýralækni samkvæmt reglugerð nr. 80/2016, um velferð gæludýra, og skal númer merkis skráð við útgáfu leyfis hundsins.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd er heimilt að víkja frá skilyrði um fjöldatakmörkun sé um að ræða hunda sem notaðir eru til löggæslu- eða björgunarstarfa og minkahunda, svo og fyrir hunda sem að læknisráði eru notaðir til aðstoðar fötluðu fólki.

Við veitingu leyfis fyrir hund getur sveitarfélagið leitað umsagnar lögreglu og annarra heilbrigðiseftirlitssvæða telji það ástæðu til.

5. gr. Hundar ekki skráðir í Ísafjarðarbæ.

Hundar, sem ekki eru skráðir í Ísafjarðarbæ, mega dvelja í sveitarfélaginu án skráningar, en þó ekki lengur en þrjá mánuði á almanaksári. Ef fyrir liggur að hundur mun dveljast lengur en þrjá mánuði skal hann skráður í samræmi við 4. gr. samþykktarinnar.

Um skammtímaheimsóknir hunda í hús gildir ákvörðun eigenda einbýlis- og fjöleignarhúsa hverju sinni og/eða reglur viðkomandi húsfélags auk laga um fjöleignarhús, nr. 26/1994.

6. gr. Gögn sem þarf að framvísa við umsókn um hundaleyfi.

Umsókn um hundaleyfi skal berast rafrænt til Ísafjarðarbæjar og skulu eftirfarandi gögn lögð fram:

Upplýsingar um heiti, fæðingardag, kyn, tegund og önnur einkenni dýrs, auk myndar af hundinum.

Nafn, kennitala og lögheimili umráðamanns og annað það sem skráningarform tekur til.

Vottorð frá dýralækni eða staðfestingu af skráningu örmerkis, en skylt er að einstaklingsmerkja gæludýr, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og 11. gr. reglugerðar um velferð gæludýra, nr. 80/2016.

Staðfesting frá viðurkenndu tryggingafyrirtæki um að umsækjandi hafi gilda ábyrgðartryggingu sem nær til alls þess tjóns sem dýrið kann að valda mönnum, dýrum, gróðri eða munum, sé slík trygging ekki innifalin í leyfisgjaldi sveitarfélagsins, samkvæmt gjaldskrá.

Skilyrði fyrir leyfisveitingu hunds er að gögn skv. 1. mgr. hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda og leyfisgjald og árlegt eftirlitsgjald greitt samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins.

Eigandi hunds skal tilkynna sveitarfélaginu skriflega innan mánaðar um eiganda- eða aðsetursskipti eða dauða hunds.

Óheimilt er að halda hund í húsnæði þar sem enginn er búsettur.

Ísafjarðarbæ er heimilt að hafna beiðni um hundaleyfi ef umsækjandi hefur áður ítrekað gerst brotlegur við samþykkt um hundahald í sveitarfélaginu eða annars staðar.

Umsækjandi getur skotið synjun sveitarfélagsins um hundaleyfi til Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.

7. gr. Hundur í óskilum.

Hafi hundur sloppið frá umráðamanni og hann ekki náð hundinum eða ef hundur finnst og umráðamaður er ókunnur ber Ísafjarðarbær ábyrgð á að taka við dýrinu og vista. Sé hundur merktur, skal umráðamanni tilkynnt um handsömunina svo fljótt sem auðið er.

Sé hundur án útgefins hundaleyfis í sveitarfélaginu er óheimilt að afhenda hann fyrr en útgefið leyfi hefur fengist, í samræmi við 4. gr. samþykktarinnar. Eftir útgáfu leyfis og gegn framvísun á staðfestingu greiðslu leyfis- og eftirlitsgjalds og handsömunargjalds auk annars áfallins kostnaðar, sbr. gjaldskrá sveitarfélagsins, getur eigandi hundsins fengið hann afhentan.

Sé hundur handsamaður skal strax tilkynna eiganda það og upplýsa hann um hvað vanræksla á að vitja hundsins getur haft í för með sér. Ef umráðamaður vitjar ekki dýrsins innan viku frá því að tilkynnt var um handsömun þess eða ef umráðamaður finnst ekki innan tveggja vikna er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa dýrinu eins og um hálfvillt dýr sé að ræða, sbr. ákvæði 24. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013. Áfallinn kostnaður greiðist af skráðum eiganda.

Hundur sem ekki er einstaklingsmerktur í samræmi við 22. gr. laga um velferð dýra, telst vera hálfvillt dýr. Komi til handsömunar á slíkum hundi er sveitarfélaginu heimilt að ráðstafa honum til nýs eiganda, selja hann gegn áföllnum kostnaði eða aflífa án bóta, þegar liðnir eru tveir sólarhringar frá handsömun.

8. gr. Grimmir, varasamir og hættulegir hundar.

Hafi eigandi eða umráðamaður hunds vitneskju um eða ástæðu til að ætla að hundurinn sé grimmur eða varasamur skal hann ávallt hafa hundinn mýldan utan heimilis.

Hafi hundur bitið mann, skepnu eða gæludýr sem og ef hundur telst hættulegur, getur tjónþoli eða sveitarfélagið krafist þess að hundurinn verði aflífaður eða honum fundin önnur úrræði.

Samþykki eigandi hunds ekki aflífun né að honum séu fundin önnur úrræði skal heilbrigðisnefnd taka ákvörðun um hvort fallist verði á kröfuna. Óski hundaeigandi þess getur hann lagt fram álit sérfróðs aðila, dýralæknis eða hundaþjálfara sem heilbrigðisnefnd viðurkennir, áður en ákvörðun um afdrif hunds er tekin.

Meðan mál hunds er í skoðun er eiganda skylt að hafa hundinn í samþykktri dýrageymslu. Eigandi getur þó sótt um til heilbrigðisnefndar að fá að hafa hundinn á heimili sínu meðan málið er í skoðun gegn skuldbindingu um að hafa hundinn ávallt mýldan þegar hann er utandyra.

Allur kostnaður vegna skapgerðarmats og vistunar hunds skal greiddur af skráðum eiganda.

9. gr. Bannaðar hundategundir.

Bannað er að halda hunda af þeim tegundum sem óheimilt er að flytja til landsins samkvæmt ákvörðun ráðherra svo og blendinga af þeim, sbr. reglugerð um innflutning hunda og katta, nr. 200/2020. Enn fremur er bannað að halda blendinga af úlfum og hundum.

IV. KAFLI Lausaganga, taumskylda og óheimilir staðir.

10. gr. Taumskylda.

Taumskylda er í Ísafjarðarbæ nema annað sé tekið fram og skal virða hana. Hundur skulu ávallt bera ól með plötu um hálsinn með ágreyptu leyfisnúmeri og símanúmeri eiganda.

Hundur skal aldrei ganga laus utan svæða sem eru þar til ætluð, s.s. í hundagerði, heldur vera í taumi í fylgd með aðila sem hefur fullt vald yfir honum eða vera í tryggu gerði innan lóðar. Ef hundur sleppur skulu umráðamenn þegar gera ráðstafanir til að handsama hann.

Aðeins er heimilt að tjóðra hunda utandyra í undantekningartilvikum og þá einungis undir eftirliti í stuttan tíma í senn, sbr. reglugerð um velferð gæludýra, nr. 80/2016. Þegar hundur er í festi á lóð skal lengd festarinnar við það miðuð að þeir sem eiga réttmætt erindi inn á lóðina geti óhindrað farið um lóðina.

11. gr. Lausaganga hunda.

Í þéttbýli er heimilt að sleppa hundum lausum í þar til gerðu hundagerði og á þeim svæðum sem skilgreind eru sem lausagöngusvæði af Ísafjarðarbæ.

Utan þéttbýlis er heimilt að sleppa hundi lausum undir eftirliti umsjónarmanns, án þess þó að gengið sé á rétt viðkomandi landeiganda. Sé hundur laus ber umsjónarmanni að tryggja að hann valdi ekki öðrum ónæði, skapi hættu eða óöryggi og hlýði innkalli. Lausir hundar mega þó ekki vera á skíðasvæðum þegar þau eru notuð sem slík.

Hundar á lögbýlum mega ganga frjálsir á landareign eigenda sinna. Að öðru leyti skulu þeir hundar háðir ákvæðum samþykktar þessarar.

Hunda sem ganga lausir á almannafæri er heimilt að handsama og færa í dýrageymslu á vegum Ísafjarðarbæjar. Lesið skal af einstaklingsmerkjum og þegar gerðar ráðstafanir til að hafa uppi á eigendum hundanna.

12. gr. Óheimilir staðir.

Ekki má hleypa hundum inn í húsrými, s.s. skóla, leikvelli, íþróttavelli eða þá staði, sem um getur í 43. gr. reglugerðar um hollustuhætti, nr. 903/2024, nema í tilvikum þar sem heilbrigðisnefnd hefur heimilað. Heimilt er að fara með hunda inn í íþróttamannvirki, heilbrigðisstofnanir eða snyrtistofur þegar og þar sem starfsemin er sérstaklega ætluð dýrum. Einnig eru hundar heimilaðir í strætó og á þeim veitingastöðum sem við á, sbr. ákvæði sömu greinar.

Óheimilt er að hleypa hundum inn í húsnæði matvælafyrirtækja, sbr. reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 852/2004 um hollustuhætti sem varða matvæli, nr. 103/2010, og reglugerð um náttúrulegt ölkelduvatn og átappað lindarvatn, nr. 405/2004. Víkja má frá fyrirmælum samþykktar þessarar sem banna eða takmarka umferð og dvöl hunda um tiltekna staði þegar um er að ræða þjónustuhunda sem nýttir eru til atvinnustarfsemi svo sem sérþjálfaða leiðsögu- og hjálparhunda, björgunarhunda, löggæsluhunda og hunda í landbúnaði.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

13. gr. Gjaldtaka.

Bæjarstjórn er heimilt að innheimta leyfis- og eftirlitsgjöld í samræmi við gjaldskrá sem sveitarfélagið setur skv. 5. mgr. 59. gr. laga nr. 7/1998 og lætur birta í B-deild Stjórnartíðinda.

Leyfisgjald skal í fyrsta sinn greitt við útgáfu leyfis fyrir dýri, auk eftirlitsgjalds, og síðan árlega eftir það í formi eftirlitsgjalda. Gjöld skulu greidd fyrirfram. Eftirlitsgjald greiðist hlutfallslega miðað við þann mánuð er leyfi er gefið út og skal innheimt 1. mars, með eindaga 30 dögum síðar. Kostnaður við handsömun, geymslu og aflífun hunda skal greiddur samkvæmt gildandi gjaldskrá hverju sinni.

Gjöldunum er ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við hundahald og framkvæmd samþykktar þessarar. Í gjaldskránni skal koma fram hvað er innifalið í leyfisgjaldi og eftirlitsgjaldi og upphæð handsömunar- og vörslugjalds vegna dýra sem ganga laus eða eru tekin í vörslu sveitarfélagsins vegna brota á samþykkt þessari.

Hundar sem notaðir eru við búrekstur á lögbýlum eru leyfisskyldir í samræmi við 4. gr. samþykktarinnar. Eru þeir þó undanþegnir árlegu eftirlitsgjaldi. Sama á við um þjónustuhunda sem nýttir eru til atvinnustarfsemi svo sem sérþjálfaða leiðsögu- og hjálparhunda, björgunarhunda, löggæsluhunda og hunda í landbúnaði. Þeir eru undanþegnir árlegu leyfisgjaldi.

14. gr. Þvingunarúrræði og afturköllun leyfa.

Um valdsvið og þvingunarúrræði vísast til XVII. kafla laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

Bæjarstjórn er heimilt að afturkalla leyfi fyrir hundi ef vanhöld verða á ormahreinsun, tryggingum eða greiðslu gjalda sem og ef eigandi hunds hefur brotið gegn samþykkt þessari. Fylgja skal ákvæðum stjórnsýslulaga um meðferð máls.

Einnig er heimilt að afturkalla allar skráningar telji sveitarfélagið það nauðsynlegt í þágu hollustuhátta og öryggis. Jafnframt getur sveitarfélagið, telji það og héraðsdýralæknir brýna þörf á, af sömu ástæðu bannað eða takmarkað gæludýrahald í dreifbýli.

Eigendur eða umráðamenn gæludýra sem brjóta gegn ákvæðum samþykktar þessarar skulu jafnan sæta skriflegri áminningu af hálfu heilbrigðisnefndar og gefinn hæfilegur frestur til úrbóta. Ef skráður umráðamaður hunda vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað eða alvarlega gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hundahald getur heilbrigðisnefnd bannað viðkomandi að halda gæludýrið og látið fjarlægja dýrið.

15. gr. Viðurlög og kæruheimild.

Um viðurlög vegna brota á samþykkt þessari fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998. Brot gegn samþykkt þessari varða sektum rúmist þau jafnframt innan refsiákvæða hlutaðeigandi laga, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Skulu þau brot sæta þeirri málsmeðferð sem boðin er í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

Um kæruheimildir fer samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

16. gr. Gildistaka.

Samþykkt þessi staðfestist hér með skv. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til þess að öðlast gildi við birtingu. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt um hundahald í Ísafjarðarbæ, nr. 906/2013.

Ákvæði til bráðabirgða.

I.

Þær undanþágur frá banni við hundahaldi, sem veittar hafa verið fyrir gildistöku samþykktar þessarar, halda gildi sínu. Að öðru leyti gildir samþykktin um áður veittar undanþágur.

II.

Þeim sem halda hunda í Ísafjarðarbæ án leyfis er skylt að sækja um leyfi fyrir þá innan sex mánaða frá gildistöku samþykktarinnar.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 4. febrúar 2026.

F. h. r.

Kjartan Ingvarsson.

Trausti Ágúst Hermannsson.

B deild — Útgáfudagur: 19. febrúar 2026

Tengd mál