Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Málaflokkur

Skipulagsmál, Reykjavík

Undirritunardagur

8. desember 2016

Útgáfudagur

9. desember 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1091/2016

8. desember 2016

AUGLÝSING

um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.

Mýrargata 26.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 7. september 2016, breytingu á skilmálum deiliskipulags Slippa- og Ellingsensreits vegna lóðarinnar nr. 26 við Mýrargötu. Í breytingunni felst að heimilað er að breyta notkun á eign 0216 úr íbúð í verslunar- og þjónustuhúsnæði. Nýtingarhlutfall lóðarinnar er óbreytt en íbúðum fækkar úr 68 í 67. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Efstasund 42.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 2. desember 2016, breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundin vegna lóðarinnar nr. 42 við Efstasund. Í breytingunni felst að byggingarreitur B breytist þannig að innan reitsins rúmist allt að 40 m² bílskúr sem liggur að lóðarmörkum í norður og vestur. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Efstaleiti, RÚV-reitur.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 7. desember 2016, breytingu á deiliskipulagi RÚV-reits. Í breytingunni felst að lóðarmörk lóðarinnar nr. 1 við Efstaleiti og lóðar C eru færð til þannig að Jaðarleiti verði borgargata og skilmálar um útskot húsa verði samræmdir milli lóða á reitnum. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkurborgar, 8. desember 2016.

Björn Axelsson.

B deild - Útgáfud.: 9. desember 2016

Tengd mál