Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Kaldrananeshreppur
Málaflokkur
Heilbrigðiseftirlit, Vatnamál, Strandasýsla
Undirritunardagur
10. desember 2025
Útgáfudagur
14. apríl 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1713/2025
10. desember 2025
GJALDSKRÁ
fyrir fráveitur í Kaldrananeshreppi.
1. gr.
Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps innheimtir gjald fyrir fráveitu í Kaldrananeshreppi og hreinsun rotþróa í sveitarfélaginu samkvæmt gjaldskrá þessari og samþykkt um fráveitur og rotþrær í Kaldrananeshreppi, sem samþykkt var í sveitarstjórn Kaldrananeshrepps 10. desember 2025.
2. gr.
Stofngjald fyrir tengingu og lagningu frárennslislagna við holræsakerfi sveitarfélagsins skal vera:
| Fyrir einbýlishús og parhús/raðhús | 160.200 kr. | á hvert hús eða íbúð í parhúsi/raðhúsi |
| Fyrir fjölbýlishús | 92.400 kr. | á hverja íbúð |
| Fyrir annað húsnæði | 173 kr. | á hvern m³ í húsnæðinu að 4.000 m³ |
| 86 kr. | á hvern m³ > 4.000 m³ |
Ef um tvöfalt frárennsliskerfi er að ræða skulu ofangreindar tölur margfaldaðar með tveimur.
3. gr.
Álagningarstofn fráveitugjalds skal vera fasteignamat húsa, mannvirkja, lóða og landa, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 94/1976. Fráveitugjald skal nema 0,22% af álagningarstofni þó aldrei lægra en 22.400 kr. né hærra en 33.700 kr. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki fráveitugjald. Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og sveitarstjórn ákveður fyrir fasteignaskatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.
4. gr.
Rotþróargjald fyrir hverja rotþró skal vera eftirfarandi árlega:
| Stærð í lítrum | Rotþróargjald í kr. |
| Rotþró < 4.000 | 22.170 |
| Rotþró 4.001-6.000 | 27.170 |
| Rotþró 6.001-8.000 | 32.100 |
| Rotþró 8.001-10.000 | 43.160 |
| Rotþró > 10.000 | 3.700 pr. umframrúmmetra |
Verð miðast við að hreinsibíll þurfi ekki að standa fjær rotþró en 10 metra.
Fyrir hverja 10 metra umfram það skal greiða 3.600 kr.
5. gr.
Gjöld skv. gjaldskrá þessari má taka lögtaki og má gera lögtak í hinni skattskyldu eign án tillits til eigendaskipta. Njóta gjöldin lögveðsréttar í lóð og mannvirkjum næstu tvö ár eftir gjalddaga með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði.
6. gr.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Kaldrananeshrepps 10. desember 2025 og staðfestist hér með samkvæmt II. kafla laga um uppbyggingu og rekstur fráveitna, nr. 9/2009, og 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1809/2024.
Drangsnesi, 10. desember 2025.
F.h. Kaldrananeshrepps,
Finnur Ólafsson oddviti.
B deild — Útgáfudagur: 14. apríl 2026