Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið (2012-2022)
Málaflokkur
Þingeyjarsýslur, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd, Norðurþing
Undirritunardagur
1. apríl 2020
Útgáfudagur
22. apríl 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 367/2020
1. apríl 2020
AUGLÝSING
um verndarsvæði á Norðausturlandi – háhiti Gjástykkissvæðis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.
1. gr. Um friðlýsinguna.
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli verndarflokks þingsályktunar nr. 13/141 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frá 14. janúar 2013, að friðlýsa háhitasvæði Gjástykkis: 100 Gjástykki í Norðurþingi, Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit gagnvart orkuvinnslu á grundvelli 53. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Verndarsvæðið er 52 km² að stærð.
2. gr. Markmið friðlýsingarinnar.
Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar er að vernda háhitasvæði Gjástykkis: 100 Gjástykki gegn orkuvinnslu, sbr. 1. gr.
3. gr. Mörk verndarsvæðisins.
Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á korti og afmarkast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka I sem birtur er með auglýsingu þessari.
Afmörkun jarðhita er dregin eftir útbreiðslu háhita samkvæmt viðnámsmælingum og landslagi. Friðlýsing Gjástykkissvæðis markast af Einbúa í vestri, Gæsafjöllum í suðvestri, Hrútafjöllum í austri og fylgir hrauninu til norðurs.
4. gr. Mannvirkjagerð og orkurannsóknir.
Orkuvinnsla varmaafls með uppsett varmaafl 50 MW eða meira innan marka svæðisins er óheimil. Ekki er heimilt að veita leyfi tengd orkurannsóknum eða orkuvinnslu á verndarsvæðinu vegna virkjunar jarðvarma með uppsett varmaafl 50 MW eða meira. Að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og að undangenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að stunda yfirborðsrannsóknir á verndarsvæðinu.
5. gr. Viðurlög.
Brot gegn friðlýsingu þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, sbr. 90. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013.
6. gr. Gildistaka.
Friðlýsingin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 1. apríl 2020.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Sigríður Auður Arnardóttir.
VIÐAUKI (sjá PDF-skjal)
B deild - Útgáfud.: 22. apríl 2020