Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

6. maí 2022

Útgáfudagur

6. maí 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 532/2022

6. maí 2022

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

3.50 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/582 frá 8. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.50.
3.51 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/627 frá 13. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.51.
3.52 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/660 frá 21. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/145/SSUÖ um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 3.52.
4.55 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/581 frá 8. apríl 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.55.
4.56 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/580 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.56.
4.57 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/625 frá 13. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.57.
4.58 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2022/658 frá 21. apríl 2022 um framkvæmd reglugerðar (ESB) nr. 269/2014 um þvingunaraðgerðir með tilliti til aðgerða sem grafa undan eða ógna landamærahelgi, fullveldi og sjálfstæði Úkraínu, sbr. fylgiskjal 4.58.
7.20 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/578 frá 8. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2014/512/SSUÖ um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 7.20.
8.12 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/576 frá 8. apríl 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 833/2014 um þvingunaraðgerðir í ljósi aðgerða Rússlands sem grafa undan stöðugleika í Úkraínu, sbr. fylgiskjal 8.12.
9.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2022/628 frá 13. apríl 2022 um breytingu á ákvörðun 2022/266 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð, sbr. fylgiskjal 9.1.
10.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2022/626 frá 13. apríl 2022 um breytingu á reglugerð ráðsins (ESB) 2022/263 um þvingunaraðgerðir til að bregðast við viðurkenningu á héruðunum Donetsk og Luhansk í Úkraínu, sem lúta ekki stjórn ríkisstjórnar og skipunum um að senda rússneskan herafla inn í þessi héruð, sbr. fylgiskjal 10.1.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 6. maí 2022.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 6. maí 2022

Tengd mál