Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dalvíkurbyggð

Málaflokkur

Skipulagsmál, Dalvíkurbyggð

Undirritunardagur

12. febrúar 2026

Útgáfudagur

12. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 134/2026

12. febrúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Dalvíkurbyggð.

Breyting á deiliskipulagi frístundasvæðis í landi Hamars.

Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkti 6. júní 2025 breytingu á deiliskipulagi fyrir frístundabyggð í landi Hamars.

Breytingin tekur til lóðar nr. 9a við B3 götu og felur í sér að byggingarheimild á lóðinni er aukin úr 70 m² í 90 m² og að byggingarreit fyrir geymsluskúr er bætt inn á deiliskipulagsuppdrátt. Þá er jafnframt felld út kvöð um frestun á nýtingu byggingarreita innan deiliskipulagssvæðisins þar sem loftlína hefur verið lögð í jörðu.

Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

Dalvík, 12. febrúar 2026.

F.h. Dalvíkurbyggðar,

María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 12. febrúar 2026

Tengd mál