Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
13. maí 2020
Útgáfudagur
14. maí 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 444/2020
13. maí 2020
REGLUGERÐ
um kröfur um notkun loftrýmis og verklagsreglur um hæfisbundna leiðsögu.
1. gr. Gildissvið.
Reglugerðin gildir um veitendur þjónustu á sviði rekstrarstjórnunar flugumferðar/flugleiðsöguþjónustu og um rekstraraðila flugvalla (veitendur ATM-/ANS-þjónustu) sem bera ábyrgð á því að koma á blindaðflugsverklagi eða flugþjónustuleiðum þegar þjónustan er veitt í loftrými á íslensku yfirráðasvæði, sem og í því loftrými sem Ísland ber ábyrgð á
2. gr. Lögbært yfirvald.
Samgöngustofa er lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.
3. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1048 frá 18. júlí 2018 um kröfur um notkun loftrýmis og verklagsreglur um hæfisbundna leiðsögu, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, samanber ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 22/2019 frá 8. febrúar 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12 frá 27. febrúar 2020 bls. 437-442.
4. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Reglugerðin kemur til framkvæmda 3. desember 2020, sbr. nánar 7. gr. framkvæmdarreglugerðarinnar.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 13. maí 2020.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.
B deild - Útgáfud.: 14. maí 2020