Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Árnessýsla
Undirritunardagur
18. júlí 2025
Útgáfudagur
1. ágúst 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 864/2025
18. júlí 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Flóahreppi.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Flóahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Lambhagatá, L217656, Ósabotnar, ný lóð og stækkun byggingarreits.
Um er að ræða óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Ósabotna í Flóahreppi, nánar tiltekið á vinnslusvæði Selfossveitna. Þar er leyfilegt að bora borholur og byggja upp viðeigandi innviði til að vinna úr þeim heitt vatn. Í breytingunni felst heimild fyrir stofnun nýrrar lóðar og stækkun á núverandi byggingarreit á lóðinni Lambhagatá L217656. Engar breytingar eru gerðar á skilmálum deiliskipulagsins að öðru leyti.
Samþykkt í sveitarstjórn 3. júní 2025.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 18. júlí 2025.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
B deild — Útgáfudagur: 1. ágúst 2025