Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Málaflokkur

Sjóðir og stofnanir, Nýsköpunarverkefni

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

18. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 54/2026

11. júní 2026

LÖG

um opinberan stuðning við vísindi og nýsköpun.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

I. KAFLIMarkmið og gildissvið.

1. gr. Markmið og gildissvið.

Markmið laga þessara er að á Íslandi verði alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi rannsókna og nýsköpunar þar sem áhersla er lögð á gæði, árangur, skilvirkni og gagnsæi, samfélagsleg áhrif og alþjóðlegt samstarf.

Lög þessi gilda um hlutverk, uppbyggingu og starfsemi samkeppnissjóða, sbr. 2. gr., og Rannís, sbr. 22. gr.

2. gr. Samkeppnissjóðir.

Rannsóknasjóður, Nýsköpunarsjóður, Áherslusjóður og Innviðasjóður eru samkeppnissjóðir, þ.e. afmarkaðir sjóðir sem auglýsa eftir umsóknum og umsækjendum er gefinn kostur á að sækja um styrki fyrir verkefni í samkeppni við aðra umsækjendur. Sjóðirnir heyra undir ráðherra. Úthlutun úr samkeppnissjóðum skal byggð á faglegu mati á umsóknum og í samræmi við matsviðmið.

Stjórnir samkeppnissjóða samkvæmt lögum þessum bera ábyrgð á því að viðeigandi gögnum sé safnað til að fylgjast með lykilmælikvörðum og vinna mat á áhrifum styrkveitinga sjóðs með tilliti til markmiða og hlutverks sjóðs. Slíkt áhrifamat skal birt eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti. Kostnaður við áhrifamat skal greiddur af fjárveitingum hvers sjóðs.

Tekjur samkeppnissjóða samkvæmt lögum þessum eru fjárveitingar í fjárlögum ár hvert og önnur framlög. Kostnaður við rekstur samkeppnissjóða skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé þeirra.

Ákvarðanir stjórna um styrkveitingar eru endanlegar á stjórnsýslustigi samkvæmt lögum þessum og sæta ekki kæru til æðra stjórnvalds.

II. KAFLIRannsóknasjóður.

3. gr. Hlutverk Rannsóknasjóðs.

Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styðja vísindarannsóknir á Íslandi og rannsóknatengt framhaldsnám. Sjóðurinn veitir styrki til skilgreindra verkefna til að efla samkeppnishæfni vísindastarfs á Íslandi og styðja nýliðun í íslensku vísindasamfélagi.

Rannsóknasjóður veitir styrki á grundvelli faglegs mats á gæðum umsókna skv. 2. gr. og í samræmi við áherslur ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

4. gr. Stjórn Rannsóknasjóðs.

Ráðherra skipar fimm manna stjórn Rannsóknasjóðs til þriggja ára í senn. Einn skal vera tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins, tveir tilnefndir af Vísinda- og nýsköpunarráði og tveir án tilnefningar. Stjórnarmenn skulu hafa reynslu og þekkingu á vísindarannsóknum. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Ekki er heimilt að skipa sama aðila lengur en tvö tímabil samfellt.

Stjórnin tekur ákvarðanir um úthlutanir úr Rannsóknasjóði að fengnum umsögnum fagráða skv. 5. gr. Stjórnin hefur heimild til að leita ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðsins getur veitt, ef þurfa þykir.

Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.

Stjórn er heimilt að veita viðurkenningar af ráðstöfunarfé Rannsóknasjóðs fyrir framúrskarandi árangur í vísindarannsóknum.

5. gr. Fagráð Rannsóknasjóðs.

Stjórn Rannsóknasjóðs skipar fagráð sjóðsins, eitt eða fleiri, til tveggja ára í senn. Stjórnin skipar formenn fagráða sérstaklega. Fagráðin hafa það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir stjórn við úthlutanir úr sjóðnum.

Fagráð Rannsóknasjóðs skal vera skipað einstaklingum með víðtæka reynslu á ólíkum sviðum vísindastarfs. Fagráð metur umsóknir út frá matsviðmiðum, svo sem vísindalegu gildi og gæðum, færni og aðstöðu umsækjenda til að vinna að verkefni og líkum á að verkefnið skili mælanlegum árangri og ávinningi fyrir vísindi og íslenskt samfélag.

6. gr. Úthlutunarreglur Rannsóknasjóðs.

Stjórn Rannsóknasjóðs auglýsir eftir umsóknum, gefur út reglur um umsóknir, málsmeðferð þeirra og úthlutun eigi síðar en átta vikum fyrir lok umsóknarfrests og skulu reglurnar kynntar ráðherra. Í reglunum skulu koma fram skilyrði um styrkhæfi og matsviðmið umsókna ásamt áherslum ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

7. gr. Niðurstöður verkefna Rannsóknasjóðs.

Niðurstöður verkefna, þ.m.t. rannsóknagögn, sem fjármögnuð eru með styrkjum úr Rannsóknasjóði skulu birtar í opnum aðgangi og vera öllum tiltækar nema um annað sé samið.

Styrkþegar skulu í öllum ritsmíðum sínum og kynningum um niðurstöður rannsókna geta um þátt sjóðsins í verkefni.

8. gr. Vandaðir starfshættir í vísindum.

Styrkþegar Rannsóknasjóðs skulu í öllum tilvikum fara að lögum um vandaða starfshætti í vísindum vegna styrktra verkefna og sækja um viðeigandi leyfi eftir því sem þörf er á og lög kveða á um.

III. KAFLINýsköpunarsjóður.

9. gr. Hlutverk Nýsköpunarsjóðs.

Hlutverk Nýsköpunarsjóðs er að styðja nýsköpun í íslensku þekkingarsamfélagi til lengri og skemmri tíma. Sjóðurinn styrkir verkefni frumkvöðla og lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem fela í sér nýnæmi og eru líkleg til að skila langtímaávinningi fyrir atvinnulíf og samfélag, þrátt fyrir áhættu í upphafi. Sjóðurinn styrkir einnig hagnýt rannsóknaverkefni opinberra stofnana og nýsköpunarverkefni háskólanema.

Nýsköpunarsjóður veitir styrki á grundvelli faglegs mats á gæðum nýsköpunarverkefna og í samræmi við áherslur ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

10. gr. Stjórn Nýsköpunarsjóðs.

Ráðherra skipar fimm manna stjórn Nýsköpunarsjóðs til þriggja ára í senn. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Samtaka iðnaðarins, einn samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins, einn samkvæmt tilnefningu Vísinda- og nýsköpunarráðs og tveir án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Ekki er heimilt að skipa sama aðila lengur en tvö tímabil samfellt.

Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.

Stjórnin tekur ákvarðanir um úthlutanir úr Nýsköpunarsjóði að fengnum umsögnum fagráða skv. 11. gr. Stjórnin hefur heimild til að leita ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðsins geta veitt ef þurfa þykir.

11. gr. Fagráð Nýsköpunarsjóðs.

Stjórn Nýsköpunarsjóðs skipar fagráð sjóðsins, eitt eða fleiri, til tveggja ára í senn. Stjórnin skipar formenn fagráða sérstaklega. Fagráð hafa það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir stjórn við úthlutanir úr sjóðnum. Fagráð metur umsóknir út frá matsviðmiðum, svo sem nýnæmi og nýsköpunargildi, færni og aðstöðu umsækjenda til að vinna að verkefni og líkum á að verkefnið skili mælanlegum áhrifum og ávinningi fyrir atvinnulíf og samfélag.

Fagráð Nýsköpunarsjóðs skal vera skipað einstaklingum með víðtæka reynslu af nýsköpunarstarfi.

12. gr. Úthlutunarreglur Nýsköpunarsjóðs.

Stjórn Nýsköpunarsjóðs auglýsir eftir umsóknum, gefur út reglur um umsóknir, málsmeðferð þeirra og úthlutun eigi síðar en átta vikum fyrir lok umsóknarfrests og skulu reglurnar kynntar ráðherra. Í reglunum skulu koma fram skilyrði og matsviðmið umsókna og áherslur ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

IV. KAFLIÁherslusjóður.

13. gr. Hlutverk Áherslusjóðs.

Hlutverk Áherslusjóðs er að styrkja verkefni sem miða að lausn skilgreindra samfélagslegra áskorana með aðferðum vísinda og nýsköpunar og unnin eru í samstarfi fyrirtækja, rannsóknastofnana, háskóla eða annarra þar til bærra aðila.

Ráðherra leggur til áherslur hverrar úthlutunar í samráði við ráðherranefnd um vísindi og nýsköpun og skulu úthlutanir sjóðsins falla að framtíðarsýn nefndarinnar og áherslum stjórnvalda hverju sinni.

Stjórn sjóðsins hefur heimild til að fjármagna stuðning vegna þátttöku íslenskra aðila í verkefnum sem hljóta samþykki frá alþjóðlegum samfjármögnunaráætlunum eftir því sem við á, í samræmi við áherslur og skuldbindingar stjórnvalda hverju sinni.

14. gr. Stjórn Áherslusjóðs.

Ráðherra skipar þriggja manna stjórn Áherslusjóðs til þriggja ára í senn. Einn stjórnarmaður skal skipaður samkvæmt tilnefningu forsætisráðherra og einn samkvæmt tilnefningu þess ráðherra sem fer með fjárreiður ríkisins. Ráðherra skipar formann stjórnar án tilnefningar. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Ekki er heimilt að skipa sama aðila lengur en eitt tímabil samfellt.

Stjórnin tekur ákvarðanir um úthlutanir úr sjóðnum að fengnum umsögnum fagráðs skv. 15. gr. Stjórnin hefur heimild til að leita ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðsins getur veitt, ef þurfa þykir.

Stjórnin tekur einnig ákvörðun um framlag úr sjóðnum til verkefna sem hlotið hafa samþykki frá alþjóðlegum samfjármögnunaráætlunum sem Ísland er aðili að, að undangengnu faglegu mati slíkra áætlana og að þau falli að áherslum og framtíðarsýn ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.

15. gr. Fagráð Áherslusjóðs.

Stjórn Áherslusjóðs skipar fagráð fyrir hverja úthlutun. Stjórnin skipar formann fagráðs sérstaklega. Fagráð metur umsóknir út frá gæðum, samstarfi, færni og aðstöðu umsækjenda til að sinna verkefni og líkum á að verkefnið skili mælanlegum ávinningi fyrir íslenskt samfélag.

Fagráð Áherslusjóðs skal vera skipað einstaklingum með víðtæka reynslu á því sviði sem úthlutunin tekur til.

Fagráðið lýkur störfum eftir hverja úthlutun.

16. gr. Úthlutunarreglur Áherslusjóðs.

Stjórn Áherslusjóðs auglýsir eftir umsóknum, gefur út reglur um umsóknir, málsmeðferð þeirra og úthlutun eigi síðar en átta vikum fyrir lok umsóknarfrests. Reglurnar skulu kynntar ráðherra fyrir birtingu. Í reglunum skulu koma fram skilyrði og matsviðmið umsókna sem eiga við hverju sinni.

V. KAFLIInnviðasjóður.

17. gr. Hlutverk Innviðasjóðs.

Hlutverk Innviðasjóðs er að stuðla að markvissri uppbyggingu og samnýtingu rannsókna- og tækniinnviða á Íslandi í samstarfi stjórnvalda, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Úthlutanir úr sjóðnum taka mið af áherslum ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun hverju sinni og fyrirliggjandi vegvísi og forgangsröðun stjórnar sjóðsins. Innviðasjóður fjármagnar innviði í samstarfi við umsækjendur sem skulu vera fleiri en ein stofnun eða fyrirtæki. Innviðasjóður getur einnig tekið þátt í fjármögnun og uppbyggingu á alþjóðlegum rannsókna- og tækniinnviðum.

18. gr. Stjórn Innviðasjóðs.

Ráðherra skipar þriggja manna stjórn Innviðasjóðs til þriggja ára í senn. Þar af skulu tveir stjórnarmenn skipaðir samkvæmt tilnefningu Vísinda- og nýsköpunarráðs og einn án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Ekki er heimilt að skipa sama aðila lengur en tvö tímabil samfellt.

Stjórnin tekur ákvarðanir um úthlutanir úr Innviðasjóði að fengnum umsögnum fagráðs skv. 19. gr. Stjórnin hefur heimild til að leita ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðsins getur veitt, ef þurfa þykir.

Stjórnin skal vinna vegvísi um rannsókna- og tækniinnviði á Íslandi á fjögurra ára fresti og leggja til forgangsröðun fjárfestinga í samræmi við áherslur stjórnvalda.

Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.

19. gr. Fagráð Innviðasjóðs.

Stjórn Innviðasjóðs skipar fagráð sjóðsins til tveggja ára í senn. Stjórnin skipar formann fagráðs sérstaklega. Fagráðið skal hafa það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir stjórn við úthlutanir úr sjóðnum og meta gæði umsókna og verkefna. Fagráðið skal vera skipað einstaklingum með víðtæka reynslu af rannsóknum og nýsköpun og þekkingu á innlendu og alþjóðlegu umhverfi rannsókna- og tækniinnviða.

20. gr. Úthlutunarreglur Innviðasjóðs.

Stjórn Innviðasjóðs auglýsir eftir umsóknum, gefur út reglur um umsóknir, málsmeðferð þeirra og úthlutun eigi síðar en átta vikum fyrir lok umsóknarfrests og skulu reglurnar kynntar ráðherra. Í reglunum skulu koma fram skilyrði og matsviðmið umsókna, fyrirliggjandi vegvísir og forgangsröðun ásamt áherslum ráðherranefndar um vísindi og nýsköpun.

21. gr. Opið aðgengi að innviðum.

Aðgengi að rannsókna- og tækniinnviðum sem fjármagnaðir eru af Innviðasjóði skal vera opið eins og hægt er, háð samkomulagi og rekstrarformi innviðanna og að uppfylltum faglegum kröfum. Innviðir sem fjármagnaðir eru af sjóðnum skulu nýtast sem flestum óháð staðsetningu.

VI. KAFLIRannís.

22. gr. Hlutverk Rannís.

Rannís er ríkisstofnun sem heyrir undir ráðherra og starfar á grundvelli laga þessara. Rannís er þjónustumiðstöð þekkingarsamfélagsins og helstu hlutverk stofnunarinnar eru að:

  1. Veita faglega þjónustu við umsýslu opinberra samkeppnissjóða og réttindasjóða, þ.m.t. sjóða samkvæmt lögum þessum, og miðla upplýsingum um þá.
  2. Veita þjónustu og miðla upplýsingum til hagaðila um tækifæri í alþjóðlegu samstarfi og áætlunum sem Ísland er aðili að, þ.m.t. eru samstarfsáætlanir Evrópusambandsins á sviði vísinda, nýsköpunar, menntunar og menningar, og norrænar samstarfsáætlanir.
  3. Annast gagnaöflun og greiningar í tengslum við þá sjóði sem stofnunin er með umsýslu fyrir.
  4. Annast önnur verkefni samkvæmt ákvörðun ráðherra. Stofnunin getur tekið að sér umsýslu sjóða sem heyra undir önnur ráðuneyti og önnur verkefni með samþykki ráðherra.

23. gr. Forstöðumaður.

Ráðherra skipar forstöðumann Rannís til fimm ára í senn. Hann skal hafa háskólapróf og þekkingu á starfssviði stofnunarinnar. Forstöðumaður annast daglegan rekstur stofnunarinnar, er í fyrirsvari fyrir hana út á við og ber ábyrgð á rekstri hennar og að starfsemi hennar sé í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli. Jafnframt annast forstöðumaður ráðningu annarra starfsmanna stofnunarinnar. Ráðherra setur forstöðumanni erindisbréf.

24. gr. Vinnsla persónuupplýsinga.

Rannís er heimil vinnsla persónuupplýsinga að því marki sem hún er nauðsynleg í þeim tilgangi að sinna lögbundnu hlutverki sínu, þ.m.t. vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga um heilsufar umsækjenda með sérstakar þarfir eða fötlun, við undirbúning og veitingu styrkja.

VII. KAFLIÝmis ákvæði.

25. gr. Reglugerðarheimild.

Ráðherra getur með reglugerð mælt nánar fyrir um starfsemi og rekstur sjóða samkvæmt lögum þessum. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um starfsemi Rannís varðandi umsýslu opinberra samkeppnis- og réttindasjóða, gagnaöflun og greiningar og önnur verkefni sem stofnunin tekur að sér.

26. gr. Gildistaka.

Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2027. Frá sama tíma falla úr gildi lög um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003, og lög um Tækniþróunarsjóð, nr. 26/2021.

Við gildistöku laga þessara skulu eignir og skuldbindingar Tækniþróunarsjóðs falla til Nýsköpunarsjóðs og eignir og skuldbindingar Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar falla til Áherslusjóðs.

Ákvæði til bráðabirgða.
I.

Þeir sem þegið hafa styrk úr Rannsóknasjóði, Innviðasjóði, Tækniþróunarsjóði, Markáætlun á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar, Nýsköpunarsjóði námsmanna og Lóu – verkefnastyrkjum fyrir gildistöku laga þessara skulu halda óbreyttum réttindum og skyldum samkvæmt þeim styrkveitingum.

II.

Stjórnir Rannsóknasjóðs, Innviðasjóðs, Tækniþróunarsjóðs, Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar og Nýsköpunarsjóðs námsmanna skulu halda umboði sínu og starfa þar til nýjar stjórnir samkeppnissjóða hafa verið skipaðar samkvæmt lögum þessum.

Gjört í Reykjavík, 11. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Logi Már Einarsson.

A deild — Útgáfudagur: 18. júní 2026

Tengd mál