Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Hafnarfjörður, Sorphreinsun

Undirritunardagur

18. desember 2024

Útgáfudagur

10. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1771/2024

18. desember 2024

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu í Hafnarfjarðarkaupstað.

1. gr.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald.

2. gr.

Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem virtar eru fasteignamati. Einnig skal sorphirðugjald lagt á aukaíbúðir í húsum sem virtar eru fasteignamati sem óskiptar eignir.

Sorphirðugjaldið er ætlað til að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu, urðun sorps, ásamt kostnaði við rekstur endurvinnslustöðva og grenndarstöðva.

Hægt er að óska eftir aukatunnu við hverja íbúð.

3. gr.

Sorphirðugjaldið greiðist til bæjarsjóðs Hafnarfjarðar og skulu gjalddagar þess vera hinir sömu og gjalddagar fasteignagjalda.

4. gr.

Kr. á einingu
Matarleifar/blandaður úrgangur 240 l 28.959
Plastumbúðir/pappír 240 l 11.103
Matarleifar 240 l 21.658
Blandaður úrgangur 240 l 33.825
Blandaður úrgangur 660 l 95.685
Plastumbúðir 240 l 10.662
Plastumbúðir 660 l 31.987
Pappír og pappi 240 l 11.396
Pappír og pappi 660 l 34.005
Matarleifar djúpgámur 2.500 l 225.606
Matarleifar djúpgámur 3.000 l 270.728
Matarleifar djúpgámur 5.000 l 451.213
Blandaður úrgangur djúpgámur 2.500 l 352.348
Blandaður úrgangur djúpgámur 3.000 l 422.818
Blandaður úrgangur djúpgámur 5.000 l 704.696
Plastumbúðir djúpgámur 2.500 l 111.064
Plastumbúðir djúpgámur 3.000 l 133.277
Plastumbúðir djúpgámur 5.000 l 222.129
Pappír og pappi djúpgámur 2.500 l 118.711
Pappír og pappi djúpgámur 3.000 l 142.453
Pappír og pappi djúpgámur 5.000 l 237.422
Fast gjald – rekstur grenndar- og gámastöðva 22.622

Gjaldskrá þessi er uppfærð í janúar ár hvert miðað við breytingar á byggingarvísitölu.

Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

5. gr.

Sorphirðugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga.

6. gr.

Þar sem sorphirða fer fram samkvæmt sérstakri þjónustubeiðni skal innheimta sorphirðugjaldsins vera samkvæmt reikningi fyrir sannanlegum kostnaði.

Þar sem sorphirða er sérstaklega flókin og kostnaðarsöm skal heimilt að leggja á aukagjald fyrir sannanlegum kostnaði.

7. gr.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

8. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt í bæjarráði 28. nóvember 2024 og í bæjarstjórn Hafnarfjarðar 12. desember 2024. Gjaldskráin er birt í Stjórnartíðindum og tekur gildi 1. janúar 2025. Jafnframt fellur gjaldskrá nr. 1454/2023 úr gildi.

Hafnarfirði, 18. desember 2024.

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2025

Tengd mál