Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Norðurþing
Undirritunardagur
22. janúar 2026
Útgáfudagur
5. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 108/2026
22. janúar 2026
AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna Stórhóls – Hjarðarholts á Húsavík.
Skipulagsstofnun staðfesti 22. janúar 2026 breytingu á aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 11. desember 2025.
Í breytingunni felst að þétta á byggðina og fjölga íbúðum á ÍB8, ÍB9 og ÍB10 um allt að 80. Skilgreindar eru nýjar lóðir fyrir allt að 60 íbúðir í fjölbýlishúsum, raðhúsum og einbýlishúsum auk þess sem fjölga má skráðum íbúðum í þegar byggðum húsum um allt að 20 íbúðir, þannig að einbýlishús geti breyst í tvíbýlishús.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 22. janúar 2026.
F.h. forstjóra,
Guðrún Lára Sveinsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026