Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

1. desember 2005

Útgáfudagur

9. desember 2005

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1069/2005

1. desember 2005

AUGLÝSING

um breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar, Austurgata 22b, Hafnarfirði.

Í samræmi við skipulags- og byggingarlög samþykkti skipulags- og byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar á fundi sínum þann 5. október 2005 breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar, Austurgata 22b í Hafnarfirði. Breytingin felst í að lóðin stækkar úr 302 fermetrum í 376,1 fermetra. Hámarksbyggingarmagn hækkar úr 284,5 fermetrum í 306 fermetra. Gert er ráð fyrir að hluti húss úr timbri verði rifinn og endurbyggður úr steinsteypu á þremur hæðum. Gert er ráð fyrir tveim íbúðum í stað einnar og gert ráð fyrir 4 bílastæðum. Nýtingarhlutfall lækkar úr 0,94 í 0,82. Farið var með breytinguna skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum og hún yfirfarin af Skipulagsstofnun.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og tæknisviði Hafnarfjarðar, 1. desember 2005.

Anna Sofia Kristjánsdóttir arkitekt.

B deild - Útgáfud.: 9. desember 2005

Tengd mál