Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
16. apríl 2021
Útgáfudagur
4. maí 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 491/2021
16. apríl 2021
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 605/2006 um starfsskyldur kennara og sérfræðinga við Háskóla Íslands.
1. gr.
1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglnanna orðast svo: Til þess að eiga kost á rannsóknamisseri skal meðaltal rannsóknastiga úr völdum flokkum matskerfis opinberra háskóla, sbr. töflu í lok 7. gr. reglna nr. 1300/2020 um framgang akademísks starfsfólks við Háskóla Íslands, sbr. einnig lið 1, Rannsóknir, í 8. gr. sömu reglna, nema a.m.k. 10 stigum á ári.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, eru settar samkvæmt heimild í 5. mgr. 15. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 16. apríl 2021.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 4. maí 2021