Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Sveitarfélagið Árborg
Málaflokkur
Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg
Undirritunardagur
11. nóvember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1357/2025
11. nóvember 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Árborg.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og samkvæmt viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018, sbr. breytingu á samþykktinni nr. 64/2025, sem kveða á um valdheimildir skipulagsfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu, er eftirfarandi óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi samþykkt:
Austurbyggð II, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti 5. nóvember 2025 óverulega breytingu á deiliskipulagi sem tekur til Austurbyggðar II á Selfossi. Í breytingunni felst að skipulagssvæðið er stækkað til suðvestur og suðausturs til að ná utan um nýja göngustíga sem tengjast hverfinu.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Selfossi, 11. nóvember 2025.
F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,
Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025