Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Akureyrarbær
Málaflokkur
Skipulagsmál, Akureyri
Undirritunardagur
24. júlí 2025
Útgáfudagur
8. ágúst 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 878/2025
24. júlí 2025
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.
Breyting á deiliskipulagi við Grænhól, athafnasvæði.
Bæjarráð Akureyrarbæjar, í fjarveru bæjarstjórnar, samþykkti 3. júlí 2025 breytingu á deiliskipulagi við Grænhól, athafnasvæði.
Breytingin felur í sér að afmörkuð verður ný 3.600 m² lóð á erfðafestulandi norðvestan Síðubrautar og sunnan Sjafnargötu 1a og 1b þar sem gert er ráð fyrir allt að fimm smáhýsum.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
Akureyri, 24. júlí 2025.
F.h. Akureyrarbæjar,
Rebekka Rut Þórhallsdóttir, fulltrúi skipulags- og byggingarmála.
B deild — Útgáfudagur: 8. ágúst 2025