Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Ríkisskattstjóri
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
30. desember 2011
Útgáfudagur
3. janúar 2012
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1301/2011
30. desember 2011
AUGLÝSING
frá ríkisskattstjóra um bústofn til eignar í skattframtali 2012.
Eignamat í árslok.
Samkvæmt 2. tl. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2011, álagningarárið 2012, vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:
kr. | |||
Mjólkurkýr | 105.000 | ||
Holdakýr og naut | 91.000 | ||
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri | 67.000 | ||
Geldneyti | 48.000 | ||
Kálfar, yngri en 1/2 árs | 12.000 | ||
Ær og sauðir | 7.200 | ||
Hrútar | 11.500 | ||
Gemlingar | 6.400 | ||
Geitur | 3.600 | ||
Hross á 14. vetri og eldri | 17.000 | ||
Hross á 5. – 13. vetri | 34.000 | ||
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri | 130.000 | ||
Önnur nýtanleg reiðhross | 65.000 | ||
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri | 180.000 | ||
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 260.000 | ||
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri | 360.000 | ||
Tryppi á 2. – 4. vetri | 10.500 | ||
Folöld | 7.500 | ||
Hænsni, eldri en 6 mánaða | 870 | ||
Varphænsni 6 mánaða og yngri | 550 | ||
Kjúklingar | 200 | ||
Endur | 760 | ||
Gæsir | 1.520 | ||
Kalkúnar | 2.200 | ||
Gyltur | 34.000 | ||
Geltir | 50.000 | ||
Grísir | 7.500 | ||
Kanínur | 2.000 | ||
Minkar: | Karldýr | 6.200 | |
Kvendýr | 4.300 | ||
Hvolpar | 0 | ||
Refir: | Karldýr og kvendýr | 6.000 | |
Hvolpar | 0 | ||
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri | 3.500 | ||
Reykjavík, 30. desember 2011.
Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri.