Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið (2009-2010)
Málaflokkur
Dómsmál, Lögmenn, Innheimta
Undirritunardagur
16. júní 2010
Útgáfudagur
18. júní 2010
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 60/2010
16. júní 2010
LÖG
um breyting á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., lögum um nauðungarsölu, lögum um lögmenn og innheimtulögum, með síðari breytingum (réttarstaða skuldara).
FORSETI
ÍSLANDS
gjörir
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
ég
staðfest
þau
með
samþykki
mínu:
I. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
gjaldþrotaskipti
o.fl.,
nr.
21/1991,
með
síðari
breytingum.
1.
gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. er skiptastjóra heimilt við gjaldþrotaskipti á búi einstaklings að heimila honum í allt að tólf mánuði að búa áfram í húsnæði í eigu þrotabúsins eða halda umráðum einstakra lausafjármuna þess. Fyrir þau afnot skal þá greidd leiga, sem nemur að minnsta kosti þeim kostnaði sem þrotabúið ber af eigninni, en heimilt er skiptastjóra að áskilja að trygging sé sett fyrir spjöllum sem kunna að verða á henni. Áður en ákvörðun er tekin skal skiptastjóri leita afstöðu þeirra sem njóta tryggingarréttinda í eigninni.
2. gr.
Við 1. mgr. 123. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er skiptastjóra heimilt að fresta ráðstöfun eignar eftir því sem nauðsyn krefur vegna heimildar sem þrotamanni er veitt skv. 2. mgr. 87. gr.II. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
nauðungarsölu,
nr.
90/1991,
með
síðari
breytingum.
3.
gr.
4. gr.
57. gr. laganna orðast svo:Nú hefur sá sem notið hefur réttinda yfir eigninni ekki fengið þeim fullnægt með öllu af söluverðinu og getur hann þá aðeins krafið gerðarþola eða annan um greiðslu þess sem eftir stendur af skuldbindingunni að því leyti sem hann sýnir fram á að markaðsverð eignarinnar við samþykki boðs hefði ekki nægt til fullnustu kröfunnar.
Jafnframt er þeim heimilt sem kann að verða krafinn um eftirstöðvar skuldbindingar að höfða mál á hendur þeim sem með hana fer til að fá þær felldar eða færðar niður samkvæmt því sem segir í 1. mgr.
5. gr.
3. mgr. 69. gr. laganna orðast svo:Ákvæðum 57. gr. verður beitt við nauðungarsölu samkvæmt reglum þessa kafla.
III. KAFLI
Breyting
á
lögum
um
lögmenn,
nr.
77/1998,
með
síðari
breytingum.
6.
gr.
Dómsmálaráðherra skal að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands gefa út leiðbeiningar handa lögmönnum um endurgjald sem þeim sé hæfilegt að áskilja umbjóðendum sínum úr hendi skuldara vegna kostnaðar af löginnheimtu peningakröfu, sbr. 24. gr. a. Lögmönnum er óheimilt að nota leiðbeiningar þessar í öðrum tilgangi.
7. gr.
Við lögin bætist ný grein, 24. gr. a, svohljóðandi:Lögmenn annast löginnheimtu. Með löginnheimtu er átt við innheimtumeðferð á grundvelli réttarfarslaga og markast upphaf hennar við aðgerðir sem byggðar eru á lögum um aðför, nr. 90/1989, lögum um kyrrsetningu, lögbann o.fl., nr. 31/1990, lögum um nauðungarsölu, nr. 90/1991, lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, lögum um gjaldþrotaskipti o.fl., nr. 21/1991, og lögum um skipti á dánarbúum o.fl., nr. 20/1991, eða tilkynningum sem samrýmast góðum lögmannsháttum.
Við löginnheimtu skv. 1. mgr. er lögmanni óheimilt að áskilja sér endurgjald skv. 3. mgr. 24. gr. af þeim hluta kröfu sem fallinn er í gjalddaga vegna gjaldfellingar eftirstöðva skuldar sökum vanefnda á greiðslu afborgunar eða vaxta.
IV. KAFLI
Breyting
á
innheimtulögum,
nr.
95/2008,
með
síðari
breytingu.
8.
gr.
9. gr. Gjört á Bessastöðum, 16. júní 2010.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Ólafur
Ragnar
Grímsson.
(L.
S.)
Ragna Árnadóttir.
A deild - Útgáfud.: 18. júní 2010