Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skatturinn

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

20. desember 2021

Útgáfudagur

22. desember 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1490/2021

20. desember 2021

AUGLÝSING

frá ríkisskattstjóra um skil á tilkynningu um skil á ríki-fyrir-ríki skýrslu.

Tilkynningaskyldir aðilar, sbr. 4. og 5. mgr. 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu innan mánaðar frá lokum reikningsárs á árinu 2022 tilkynna ríkisskattstjóra hvaða félag í samstæðunni skili ríki-fyrir-ríki skýrslu um skattskil og um heimilisfestarríki þess félags. Jafnframt skal tilgreina sérstaklega ef hið tilkynningarskylda félag er móðurfélag heildarsamstæðunnar eða staðgöngufélag móðurfélags.

Tilkynningu samkvæmt auglýsingu þessari skal skilað með því að senda eyðublaðið RSK 4.31 á netfangið: milliverdlagning@skatturinn.is.

Allar fyrirspurnir vegna framangreindra skila má senda á netfangið: milliverdlagning@ skatturinn.is.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt 91. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.

Reykjavík, 20. desember 2021.

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 22. desember 2021

Tengd mál