Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

13. janúar 2025

Útgáfudagur

27. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 70/2025

13. janúar 2025

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 331/2022 um inntökuskilyrði í grunnnám við Háskóla Íslands.

1. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 3. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

2. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 4. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

3. gr.

Orðin „af bóknámsbraut“ í 1. málsl. 5. gr. reglnanna falla brott.

4. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 6. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

5. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 7. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

6. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. orðast svo í heild sinni:
    Til að hefja BS-nám við viðskiptafræðideild skal nemandi hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu prófi að mati deildarinnar. Æskilegur undirbúningur er minnst 15 einingar (25 framhaldsskólaeiningar) í ensku og íslensku og að minnsta kosti 12 einingar (20 framhaldsskólaeiningar) í stærðfræði.
  2. 3. töluliður í 2. mgr. orðast svo: háskólagátt frá Háskólanum á Bifröst, enda hafi viðkomandi lokið a.m.k. 10 framhaldsskólaeiningum af 3. hæfniþrepi í íslensku og ensku og a.m.k. 5 framhaldsskólaeiningum af 3. hæfniþrepi í stærðfræði.

7. gr.

2. mgr. 10. gr. reglnanna orðast svo í heild sinni:

Gerð er krafa um að nemandi hafi lokið að lágmarki 20 einingum í stærðfræði, 10 einingum í efnafræði og 5 einingum í eðlisfræði en auk þess er gerð krafa um að nemandi hafi lokið að lágmarki samanlagt 45 einingum í þessum fögum og skyldum fögum, eins og t.d. líffræði eða lífeðlisfræði.

8. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 13. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

9. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 15. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

10. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 16. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

11. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 17. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

12. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 18. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

13. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 19. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

14. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 20. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

15. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 21. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

16. gr.

Orðin „enda hafi viðkomandi lokið námskeiðunum ensku III, íslensku IV og stærðfræði V“ í lokamálslið 1. mgr. 22. gr. reglnanna falla brott ásamt sviganum sem afmarkar þau.

17. gr.

Reglur þessar hefur háskólaráð sett á grundvelli tillagna viðkomandi fræðasviða og með vísan til 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008, um opinbera háskóla.

Háskóla Íslands, 13. janúar 2025.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. janúar 2025

Tengd mál