Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjármálastarfsemi

Undirritunardagur

5. apríl 2023

Útgáfudagur

25. apríl 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 395/2023

5. apríl 2023

REGLUR

um tilnefningu miðlægs tengiliðar í greiðsluþjónustu.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um greiðslustofnanir samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021.

2. gr. Miðlægur tengiliður.

Um tilnefningu miðlægs tengiliðar og hlutverk hans skv. 33. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021, fer eftir ákvæðum reglugerðar (ESB) 2020/1423, sbr. 3. gr.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1423 frá 14. mars 2019 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 að því er varðar tæknilega eftirlitsstaðla um viðmið fyrir tilnefningu aðaltengiliða á sviði greiðsluþjónustu og um hlutverk þessara tengiliða, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2021 frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023, bls. 1-3.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 3. mgr. 114. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021, öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 5. apríl 2023.

Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri.
Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 25. apríl 2023

Tengd mál