Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Málaflokkur

Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla

Undirritunardagur

20. mars 2026

Útgáfudagur

8. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 336/2026

20. mars 2026

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi fyrrum Stykkishólmsbæjar vegna Agustsonreits, Sveitarfélaginu Stykkishólmi.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun staðfesti 20. mars 2026 breytingu á aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. desember 2025.

Í breytingunni felst að mörkuð er stefna um nýtt verslunar- og þjónustusvæði með heimild fyrir íbúðum á efri hæðum á Agustsonreit. Breytingin tekur til um 0,56 ha svæðis og minnkar núverandi athafnasvæði sem því nemur. Innan nýs svæðis er gert ráð fyrir uppbyggingu á þremur lóðum, samtals allt að 11.000 m².

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, 20. mars 2026.

Ólafur Árnason.

B deild — Útgáfudagur: 8. apríl 2026

Tengd mál